almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, eins og hann kom inn á í fyrra andsvari sínu, um hvatningu til fólks um að leggja fyrir í séreignarsjóði. Án þess að ég ætli að vera með einhverja fjármálaráðgjöf hérna þá er það tvímælalaust eitthvað sem menn eiga að gera af því að lögin heimila það. Það er auðvitað mikilvægt að menn leggi fyrir í lífeyrissjóð og við erum þeirrar gæfu aðnjótandi hérna á Íslandi að hafa borið gæfu til þess að taka upp þetta lífeyrissjóðakerfi sem við höfum í stað þess kerfis sem langflest önnur ríki í Evrópu hafa með tilheyrandi greiðslubyrði ríkissjóðs. Ég bind miklar vonir við það og held að það gerist fyrr en ella, af því að menn hafa talað um að það taki 40 ár fyrir svona kerfisbreytingar að taka gildi, og það er alveg rétt, en ég held að flestir á vinnumarkaði í dag eigi það rífleg lífeyrisréttindi, bæði úr almannatryggingahluta lífeyriskerfisins en einkum og sér í lagi úr séreignarsjóðum, að bætur úr almannatryggingakerfinu eigi að fara að heyra sögunni til. Mér finnst mikilvægt þegar menn tala um ellilífeyrinn — og það er einn misskilningurinn í þessu öllu saman þegar okkar besta fólk, eldri borgararnir, tala um þetta sem einhver laun eða réttindi, að menn eigi sjálfkrafa réttindi til ellilífeyris frá almannatryggingum. Almannatryggingarnar eru bætur, það er bótakerfi sem grípur þá sem af einhverjum orsökum hafa fallið milli skips og bryggju, alveg eins og atvinnuleysisbætur eru bætur til þeirra sem ekki vinna. Þeir sem síðan fá vinnu eða eru eitthvað að vinna fá ekki áfram atvinnuleysisbætur. Það sama á að vera með almannatryggingalífeyri; ellilífeyri sem á kannski að heita ellilífeyrisbætur eða ellibætur. Menn þurfa að fara að horfast í augu við það að við höfum verið að byggja upp kerfi sem gengur út á það að menn beri ábyrgð hver og einn á sínum ellilífeyri og sínum tekjum og framfærslu í ellinni, alveg eins og menn hafa sjálfir gert fram að þeim tíma.