157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[22:38]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Ég vil í upphafi ræðu minnar byrja á því að þakka nefndarmönnum í velferðarnefnd fyrir gott samstarf í þessu máli. Hér er nefnilega nokkuð stórt mál sem auðvitað skiptir miklu máli og þá er mikilvægt að vandað sé til verka. Þá er kannski rétt að byrja á frumvarpinu sjálfu sem er alveg ótrúlega efnisrýrt ef litið er til umfangsins sem hér um ræðir. Í heildina uppsafnað erum við að tala um 5,9 milljarða kr. sem er býsna stór biti af kökunni sem við höfum til að deila út. Ég mun svo sem víkja betur að því síðar í ræðu minni að sá galli er á gjöf Njarðar að hér erum við að tala um 5,9 milljarða sem er einfaldlega ekki inni á tékkheftinu heldur er verið að skrifa gúmmívíxil á þær kynslóðir sem munu þurfa að bera þennan kostnað með vaxtakostnaði og svo uppgjöri á endanum. Þá skiptir auðvitað mjög miklu máli, eins og ég segi, að forgangsröðunin sé rétt.

Frumvarpið sjálft er, líkt og ég nefndi, efnisrýrt og það er nákvæmlega engin umfjöllun um í raun og veru hið eiginlega tilefni lagasetningar; af hverju hæstv. velferðarráðherra leggur á það ríka áherslu, sem hún gerir og ég ber virðingu fyrir, að bæta kjör fátækasta fólksins og lyfta tekjulágum hópum með þessum hætti. Maður er engu nær þegar maður les frumvarpið um hvernig þessi aðferð eigi einhvern veginn að þjóna þessu markmiði. Það er auðvitað óheppilegt og skemmir fyrir málinu að svo mörgu leyti.

Hv. þm. Sigríður Á. Andersen nefndi það hér í þingsal að þær upplýsingar sem aflað var undir rekstri málsins hjá velferðarnefnd eru auðvitað upplýsingar sem hefðu átt að liggja fyrir strax í frumvarpinu. Það er mjög athyglisvert, eins og hefur svo sem komið fram í umræðum hér í þingsal, að þegar ráðherra mælti fyrir frumvarpinu þá tók það ekki lengri tíma en u.þ.b. fimm mínútur. Stærstur hluti þess tíma fór í þessa svokölluðu þjónustugátt og persónuverndina því tengdu. Engar upplýsingar eða ástæður var að finna, hvorki í greinargerðinni né í ræðu hæstv. ráðherra, um hvers vegna það væri nauðsynlegt að fara í svo kostnaðarsamar aðgerðir né heldur hvernig þessi aðferð ætti að ná því markmiði sem að er stefnt.

Strax í upphafi er rétt að geta vinnubragðanna við vinnslu frumvarpsins. Í frumvarpinu er fjallað um samráð á samráðsvettvangi ríkisstjórnarinnar í samráðsgátt og sagt að það hafi verið tekið til skoðunar en sú skoðun leiddi þó ekki til breytinga á efni frumvarpsins, m.a. í ljósi stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarflokkanna frá 21. desember 2024. Mér finnst reyndar athyglisvert að sjá þessa setningu, sem bregður býsna oft fyrir í frumvörpum, greinargerðum og minnisblöðum frá ráðuneytinu, að það þurfi ekki að bregðast við einhverju vegna þess að aðgerðirnar sem að er stefnt eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna; eins og það séu einhver rök í sjálfu sér, sem er auðvitað ekki. Þetta er svona eitt af þessum atriðum sem við erum að glíma við.

ASÍ og Samtök atvinnulífsins finna hins vegar að því í umsögnum sínum að hér hafi ekkert eiginlegt samráð átt sér stað enda var ekki tekið tillit til nokkurra þeirra sjónarmiða sem þau tefldu fram né er þeim raunar lýst í frumvarpinu sjálfu. Það sætir auðvitað algerri furðu vegna þess að maður myndi ætla að ráðherrann sem er að vinna að þessu máli sem hún metur mikilvægt hefði séð ástæðu til að bregðast við með því einmitt að útskýra það hvers vegna þetta er skynsamleg meðferð á almannafé. Hvers vegna þessi aðferð þjónar því markmiði sem að er stefnt, að uppræta fátækt á Íslandi. Hvers vegna er það? Hvers vegna er þessi leið betri en aðrar? Aldrei er brugðist við þessu, kannski vegna þess að svörin eru engin. Bæði Samtök atvinnulífsins og ASÍ finna að þessu og þingleg meðferð málsins líður auðvitað fyrir það.

Svo er það hitt: Ég hlýddi á ræðu ráðherrans í hliðarsal þegar hún mælti fyrir frumvarpinu í nóvember. Málið er auðvitað flókið, almannatryggingakerfið er bara mjög flókið. Frumvarpið sjálft, eins og ég segi, er efnisrýrt. Hún mælti fyrir málinu tveimur dögum eftir að því var útbýtt. Það er athyglisvert að það var enginn sem tók til máls annar en ráðherrann við þá umræðu. Ég tek undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen að á því berum við öll nokkra ábyrgð. Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá þurfti ég að kynna mér málið aðeins betur áður en ég gæti átt í upplýsandi samtali við ráðherra og ég náði því ekki á þessum skamma tíma sem leið frá því að málinu var útbýtt. En ég hef svo sannarlega gert það núna í velferðarnefnd. Þar höfum við rætt málið, fengið til okkar gesti, aflað upplýsinga og upplýst var um hluti sem að mínu viti hefðu átt að koma fram í upphafi.

Það er kannski rétt að geta þess að þessi vinna, það að vilja afla upplýsinga, fá vitneskju um það hvaða hópur er að fara að fá þessa peninga, hvernig niðurbrot þessa hóps er — erum við að ná til hópsins sem hæstv. velferðarráðherra sagðist ætla að ná til, fátækasta fólksins, tekjulægsta fólksins, uppræta fátækt, eins og hún sagði hér í nóvember þegar hún mælti fyrir þessu frumvarpi, eða erum við kannski frekar, eins og kom svo í ljós í minnisblaði velferðarráðuneytisins, að verja fjármununum til tekjuhæsta hópsins sem er þarna undir? 30% af kostnaðinum fer í þrjár efstu tekjutíundirnar. Það er ekki fátækasta fólkið.

Það er kannski rétt að geta þess einmitt sérstaklega að í þessari vegferð að afla upplýsinga, upplýsa málið, bæta upp fyrir vinnubrögð ráðherrans, felst að sjálfsögðu engin andstaða við málið, bara engan veginn. Það er alveg rétt að halda því til haga að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem kom þessu kerfi á eftir mikla vinnu Péturs Blöndals heitins. Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem kom þessu frítekjumarki á; það var upphaflega 20.000 kr. og var hækkað í fyrra í 36.000 kr. Það var þessi stóra endurskoðun sem tók gildi núna í byrjun september og áhrif hennar eru enn þá að koma í ljós. Það að ég sé hér í pontu Alþingis eða í velferðarnefnd að spyrja spurninga um hvort að þarna séum við að fara best með almannafé, að ráðstafa því í þessa hít, í því felst ekki einhver sérstök andstaða við málið. Ég mótmæli því að manni sé ætlað það.

Þetta er sem sagt staðan. Það er engin umfjöllun í frumvarpinu um af hverju við erum að gera þetta og af hverju þetta þarf. Það er bara ekki umfjöllun um það. Margir umsagnaraðilar benda á að það sé engin heildstæð greining á hópnum sem um ræðir, hvers vegna við erum að gera þetta o.s.frv. Ástæðan fyrir því er væntanlega sú að hugmyndin er svo óskýr að það hefur ekki tekist að vinna þá greiningu. Þetta kemur til að mynda fram í umsögnum ASÍ, að það væri ákjósanlegt að kortleggja stöðu og umfang þeirra sem eiga þessi takmörkuðu réttindi og að það vanti þessa heildstæðu greiningu.

Það leiðir okkur þá aftur einmitt að því sem bæði Samtök atvinnulífsins og ASÍ nefna, að hækkun almenns frítekjumarks sé ekki markviss leið til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum til tekjulægri ellilífeyrisþega. Eins og segir hér, með leyfi forseta, í umsögn ASÍ:

„Þeir 5,6 milljarðar króna sem hækkun frítekjumarks er metin upp á 5,6 milljarða renna ekki til tekjulægsta hópsins.“

Þess vegna er eðlilegt að staldra við og nefna einmitt að það er enginn rökstuðningur í frumvarpinu fyrir nauðsyn aðgerðarinnar. Hún er almenn og gagnast þannig öllum þeim sem þiggja ellilífeyrisgreiðslur úr almannatryggingakerfinu. Hún er þá að miða að þessum breiða hóp. Það hefur komið fram að lágtekjuhlutfall aldurshópsins 65 ára og eldri er 4% sem er talsvert lægra en hjá fólki á aldrinum 30–44 ára, þar eru það 11%. Ráðstöfunartekjur hafa aukist mest hjá aldurshópnum 67 ára og eldri. Það efnahagslega umhverfi sem við höfum verið að eiga við undanfarin ár hefur verið sérstaklega óhagfellt ungu fólki, barnafjölskyldum, fólki sem er að koma undir sig fótunum, stofna heimili og stækka við sig; það er erfitt í hávaxtaumhverfi. Það er auðveldara fyrir eldri borgara sem eiga sinn sparnað og sínar eignir. Þegar ég segi þetta þá er það auðvitað svo að í hópi eldri borgara er auðvitað fjöldi fólks sem hefur það bara býsna skítt. Það er sjálfsagt og eðlilegt að vinna að því að bæta stöðu þess hóps. Öll erum við sammála um það að uppræta fátækt og lyfta tekjulægsta hópnum. Öll erum við sammála um það. En frumvarpið miðar ekki að því, því miður. Það hittir þá fyrir og stór hluti fjármunanna, 30%, fer til hæstu þriggja efstu tekjutíundanna.

Þá vaknar þessi stóra spurning sem er hápólitísk og að einhverju leyti siðferðileg líka og það er einmitt þetta: Er það réttlætanlegt að leggja þessa áherslu á að auka ráðstöfunartekjur eldri aldurshópa, óháð efnahagslegri stöðu þeirra, á kostnað þeirra sem eru enn á vinnumarkaði? Þá er ég að vísa til þess að þessar aðgerðir kosta 5,9 milljarða kr. Hækkun frítekjumarksins sjálfs kostar 5,6 milljarða. Það er reyndar alveg athyglisvert og má svo sem alveg halda því til haga að það kom fram í máli hv. þingmanns og formanns velferðarnefndar, Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, að það eru auðvitað alls konar sjónarmið á frumvarpinu. Það er rétt að Samtök atvinnulífsins og ASÍ voru sammála og samstiga í sinni gagnrýni, sem er auðvitað athyglisvert, en það er líka gagnrýni á það hvað hækkunin kemur seint fram, að henni sé dreift yfir nokkur ár og að stóri bitinn komi á kosningaárinu 2028.

Varðandi þetta: Ég nefndi það í andsvari mínu við hv. framsögumann málsins að við erum að eyða peningum sem eru ekki til. 5,6 milljarðar fara í þennan málaflokk sem er mjög stór biti ef litið er til þess að núna er lagt upp með það að halli ríkisrekstrar á næsta ári verði 28,2 milljarðar. Þetta er bara risabiti. Kostnaðurinn er 5,6 milljarðar og hallinn á næsta ári er 28,2 milljarðar, ef ég man rétt. Þannig að þetta er mjög stór biti og við erum að taka þessa fjármuni, ráðstafa þeim í að auka ráðstöfunartekjur eldri aldurshópa, óháð efnahagslegri stöðu þeirra og án fullnægjandi greiningar. Aðgerðin er ómarkviss og á kostnað þeirra sem yngri eru. Það er kannski það sem er stóra atriðið í þessu. Við sem erum hér inni í þessum sal erum að skrifa svona gúmmítékka á þá sem yngri eru, sem eru fátækari en þessi hópur heilt yfir og þarf kannski meira á þessum stuðningi að halda.

Þá er það einmitt þetta atriði sem ég var að velta fyrir mér fyrr í dag, þ.e. forgangsröðun ríkisstjórnarinnar, forgangsröðun þeirra mála sem við höfum verið að afgreiða. Unga fólkið, fjölskyldufólkið, fólk sem er að berjast í bökkum í þessu hávaxtaumhverfi sem við höfum verið að eiga við — hvar er stuðningurinn við það? Hvenær er ríkisstjórnin að hugsa um hagsmuni þess? Millitekjufólkið, unga fólkið og fjölskyldufólkið? Það eru börnin okkar, það er fólkið sem þarf á endanum að greiða þetta með vöxtum. Þá er nefnilega hægt að velta því upp — og það finnst mér kannski vanta, kannski hefur sú greining átt sér stað og verið unnin innan ráðuneytisins, en það eru margar leiðir til þess að uppræta fátækt og lyfta tekjulægsta hópnum, líka þessum hópi innan eldri borgaranna — hvort þessi leið sé best? Það virðist mér bara alls ekki vera raunin. Þá er hægt að eiga bara annað samtal hér inni um hvort það sé fýsilegt eða skynsamlegt að fara í almenna aðgerð til að bæta kjör eldri borgara, bara komplett, og segja það þá bara. Ekki vera að setja það í þennan búning að við séum eitthvað að reyna að uppræta fátækt heldur bara hitt, að auka ráðstöfunartekjur eldri borgara og eiga þá samtalið á þeim forsendum.

Ég sé að tíminn minn er að klárast. Ég gæti svo sem sagt ýmislegt meira um þetta mál en vil kannski bara enda þetta aftur á því að þakka ágætum félögum mínum í velferðarnefnd fyrir samstarfið. Jafnvel þó að þetta mál hafi komið inn í nóvember þá var takturinn í vinnslu þess góður. Við fengum góðar umræður í nefndinni, fengum mjög upplýsandi gesti og gátum spurt spurninga sem voru mjög fræðandi og við öfluðum upplýsinga, minnisblaða og annars þannig að málið er í allt öðrum og betri búningi til að við getum átt í vitsmunalegum umræðum hér í þingsal. (Forseti hringir.) Fyrir það ber að þakka.