almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér og jafnframt fyrir samstarfið í nefndinni við vinnslu málsins. Það eru nokkur atriði sem mig langar kannski aðeins að hnykkja á og spyrja hann út í í kjölfar ræðunnar. Eitt eru vangaveltur hans varðandi tekjulægsta fólkið og af hverju ekki er verið að horfa til þess hóps. Það er ágætt að vekja athygli á því að við fengum ágætisgögn frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um dreifingu þeirra sem almannatryggingar eru að greiða til. Það eru um 44.000 manns þar undir og það er eingöngu hópurinn sem TR greiðir til. Þeir sem eiga meiri lífeyrisréttindi og skerðast að fullu í TR eru líklega einhvers staðar milli 15–20 þús. manns. Það er hópurinn sem hefur það ögn betra en samt getur staðan verið mjög misjöfn hjá því fólki. Mig langaði að spyrja þingmanninn um þetta. Er það ekki einmitt hárrétt leið að horfa á þennan hóp sem er að fá greiðslur frá almannatryggingakerfinu? Þau eru að njóta ávinnings þar en eru hins vegar að skerðast líka mjög mikið. Er þetta ekki bara einmitt sá hópur sem hefur það mögulega verst í samfélaginu? Annað sem skiptir máli varðandi þennan hóp er að 65% þeirra sem eru með greiðslur frá TR eru með lífeyrisréttindi á bilinu 100–500 þús. á mánuði, sem er svo sem ekkert ýkja mikið, en hefði maður haft aðeins meiri tíma hefði maður getað farið dýpra ofan í tölur. En mig langaði að fá endurspeglun frá þingmanninum á þetta: Er þetta ekki bara tekjulægsta fólkið sem við erum að horfa til og styðja betur við?