157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[23:03]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir hans svar. Það væri gott að komast dýpra ofan í tölur í þessu. En einstaklingur sem hefur 500.000 kr. frá lífeyrissjóði fær u.þ.b. 171.000 kr. frá TR og útborgað 512.000. Einstaklingur með 700.000 kr. úr lífeyrissjóði er að fá um 57.000 kr. úr TR og hækkar þar af leiðandi ekki nema um, ef maður horfir bara á eftir skatt, einhverjar 7.000 kr., 8.000 kr., nei, þetta eru alveg 5.000 kr. Það er auðvitað vangavelta sem er nauðsynlegt að renna yfir hvernig við tryggjum fólki betri stöðu. Mér finnst frekar sérstakt að hlusta á þingmanninn fara yfir forgangsröðun á fjármagni og velti fyrir mér: Er ekki gott að forgangsraða fjármunum til eldra fólks og öryrkja, fólksins sem hefur það kannski erfitt í samfélaginu? Er þingmaðurinn í raun og veru á móti þeirri forgangsröðun? Væri einhver önnur forgangsröðun betri? Síðan velti ég fyrir mér hvernig hv. þingmaður myndi telja að væri betra að ná þessu markmiði, að gera þetta með sértækari hætti sem myndi ná þá til þessa hóps sérstaklega. Ég held að það væri áhugavert að fá endurspeglun á það.