157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[23:05]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þegar stórt er spurt — ég nefndi það í fyrri ræðu minni að ég sit ekki í stól hæstv. velferðarráðherra en það vantar alla vega í frumvarpið þær greiningar sem ég hef hér vísað til, af því að það eru auðvitað margar leiðir færar. Ég hef ekki upplýsingar um það hver þeirra er best en þessi leið hefur verið gagnrýnd án þess að það komi nokkurt svar. Það er vandamálið. Mér finnst frekar að þeir sem hafa verið að mæla fyrir þessu frumvarpi og styðja það fari að halla sér upp að því að þetta sé almenn aðgerð til að lyfta eldri borgurum, og gott og vel. En það á ekki að vera að setja það í hitt samhengið um að uppræta fátækt eða lyfta tekjulægstu hópunum. Varðandi leiðirnar er það sem manni dettur auðvitað fyrst í hug að hækka ellilífeyrinn sjálfan. Það er annað sem ég hef ekki séð neinar greiningar á og ég átta mig ekki á því hvernig það myndi hitta þessa hópa fyrir, en það er þetta lækkunarhlutfall sem stendur núna í 45%, ef ég man rétt. Það er hægt að lækka það líka. Það hefur einhver kerfislæg áhrif. Ég veit ekki hvað lækkun á prósentustigi kostar en það er t.d. ein leið. Það kann að vera, ég er bara komin út í sálma sem ég ætla ekki að fara að fullyrða neitt um, að það væri til að mynda ein leið. Þessi aðferð, sem eins og ég segi hittir fyrir tugþúsundir einstaklinga, kostar svo mikið af fjármunum þegar við erum að rembast við að bæta ríkisfjármálin. Þetta eru peningar sem við eigum einfaldlega ekki til og þá geld ég varhuga við því. En ég biðst undan því að mér sé ætlað að vera mótfallinn málinu eða þeim markmiðum sem að er stefnt. (Forseti hringir.)