almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir hans ræðu. Ég vil aðeins koma að, áður en ég kem kannski að spurningum til þingmannsins, þá vil ég nefna þessi 3% ellilífeyrisþega sem eru undir frítekjumörkum og munu mögulega ekki hafa þennan ávinning af frítekjumarkinu einfaldlega vegna þess að þeir hafa litlar lífeyristekjur. En það eru einmitt þessi 3% sem eru að stórum hluta til öryrkjar og munu mögulega þess vegna njóta náttúrlega góðs af aldursviðbótinni. Sá hluti sem hér hefur verið velt upp hvort verði hlunnfarinn vegna þessa frumvarps fær líklega mestu tekjuaukninguna.
Mig langar aðeins að koma að gagnrýninni. Mér finnst hún pínulítið, ja, talsvert mikið jafnvel, rýr. Það er verið að gagnrýna ráðherrann mikið, það er verið að gagnrýna að það vanti inn í greinargerðina og allt mögulegt í kringum þetta. Svo kemur bara að þetta sé ekki góð aðferð; það er búið að kalla eftir hvaða aðferð sé þá betri en það hefur ekki komið fram hvað væri betra að gera.
Mér þótti nú samt vænt um að hv. þingmaður minntist á fyrrverandi hv. þm. Pétur Blöndal sem lagði sig einmitt sérstaklega fram í þessum málaflokki. Hann var einstaklega hlýr, alúðlegur og góður maður sem hugaði oft að þeim sem voru verst settir. En þá kem ég kannski að spurningunni og þá langar mig að vita: Hvað finnst þingmanninum um umsagnir frá ÖBÍ og Þroskahjálp? Oft eru nefndar þrjár umsagnir sem eru alltaf frá sömu aðilunum; það er eins og enginn annar hafi skilað inn umsögn. Af hverju er sífellt talað um Samtök atvinnulífsins, ASÍ og BSRB. (Forseti hringir.) Hvað með hinar umsagnirnar? Nú langar mig bara að vita: Hvað þótti þingmanninum um þær umsagnir?