157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[23:10]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst vil ég geta þess að í andsvari mínu til hv. þm. Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar þá nefndi ég að ég vildi ekki að mér væri ætlað vera á móti málinu; hann var ekki að gera það, svo því sé haldið til haga.

Varðandi andsvar hv. þm. Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur um að gagnrýnin sé rýr, þá getur fólk auðvitað haft sína skoðun á því. En ég tel mikilvægt að frumvarp eins og þetta, sem varðar svona stórar fjárhæðir og er auðvitað mikilvægt í eðli sínu, sé akkúrat efnismeira en það er. Þá er ég til að mynda að vísa í annan kafla frumvarpsins um tilefni og nauðsyn, sem ég fór yfir áðan, og sjötta kaflann um mat á áhrifum. Sjálfum finnst mér alveg merkilegt hvað það hefur farið mikið púður, bæði í greinargerðinni sjálfri og að einhverju leyti í vinnu nefndarinnar, umsögnum um þessa þjónustugátt og aðra hliðarþætti þegar aðalefni frumvarpsins er frítekjumarkið og aldursviðbótin.

Varðandi umsagnir annarra aðila þá kynnti ég mér þær á sínum tíma og hef ekkert við þær að athuga. Aðalatriðið er, sem ég hef verið að klifa hér á, hvort aðgerðin sé markviss. Þá er punkturinn kannski sá, eins og hv. þingmaður nefndi, þessi 3%, viðkvæmasti hópurinn. Það er akkúrat hópurinn sem ég hefði (Forseti hringir.) séð ástæðu til þess að lyfta og gera meira akkúrat fyrir þann hóp; hópinn sem stendur höllum fæti og er tekjulægstur í okkar samfélagi.