157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[23:14]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir andsvarið. Ég hef stuttan tíma til að fjalla um það. Í sjálfu sér er þetta ekkert flókið. Verklagið er auðvitað að setja niður fyrir sig einhver markmið: Hvað þarf að gera og hverjar eru pólitískar áherslur ríkisstjórnarinnar? Til að mynda í þessu tilfelli er það að uppræta fátækt og lyfta tekjulægstu hópunum. Það er hægt að skilgreina þessa hópa; hverjir þeir eru, hvernig við getum náð til þeirra og hverjar aðferðirnar eru. Ekki eins og þessi aðgerð hér sem er, eins og ég segi, svo breið en samt undir því yfirskini að henni sé ætlað nákvæmlega að ná til þessa hóps sem stendur hvað höllustum fæti í okkar samfélagi. Þá finnst mér miklu hreinlegra og hreinskiptara að segja einfaldlega að við ætlum að fara í breiðari aðgerð; að lyfta þessum hópi eldri borgara sem eru að þiggja ellilífeyri með því að hækka frítekjumarkið.