almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér áðan, ágæta ræðu, og þakka honum jafnframt fyrir samstarfið í nefndinni sem hefur að mínu mati verið afar gott og upplýsandi. Áður en ég fer lengra þá ætla ég bara að ganga frá því strax að ég lít ekki svo á að hv. þingmaður sé á móti málinu heldur hafi áhugi hans staðið til þess að vanda til verka og fá góðar upplýsingar inn í málið. Mig langar til að biðja hann að skýra aðeins betur fyrir mér hvað hann eigi við með gúmmítékkanum. Ég skil ekki alveg það konsept hjá honum. Hv. þingmaðurinn nefndi að þetta ætti kannski frekar að gera fyrir unga fólkið því að það er unga fólkið sem borgar. Auðvitað er það þannig að ýmislegt sem við ýtum yfir á næstu kynslóðir er eitthvað sem þeir sem eru yngri í dag þurfa að greiða. Í velferðarnefnd á þessu þingi höfum við einmitt verið með ýmiss konar mál, m.a. hlutdeildarlánin. Það er mál sem er ætlað fyrstu kaupendum á markaði til að hjálpa þeim inn á markaðinn, þeim sem ekki eiga möguleika á að fá aðstoð fjölskyldu sinnar. Þarna er verið að hjálpa unga fólkinu. Í velferðarnefnd, bara svo ég bendi á það, er ýmislegt verið að gera sem varðar þessar breiðu strokur og er ekki bara fyrir þá sem eru verst settir — þó svo að það sé verið að reyna að hjálpa þeim sem síst eru settir að það væri kannski ekki endilega bara þeir sem eru allra síst settir.
Að lokum í mínu fyrra andsvari langar mig til þess að spyrja hv. þingmann hvort það komi fram í frumvarpinu að því sé einvörðungu ætlað að uppræta fátækt.