157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[23:18]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og afar ánægjulegt samstarf í velferðarnefnd og raunar líka í allsherjar- og menntamálanefnd. Til þess að svara spurningunni fyrst um hvað kemur fram í frumvarpinu og hvað kemur ekki fram í frumvarpinu þá er það reyndar athyglisvert að þetta virðist hafa dottið út úr frumvarpinu í meðförum þess en kom hins vegar alveg skýrt fram í ræðu hæstv. velferðarráðherra þegar hún mælti fyrir frumvarpinu og lagði á það þunga áherslu að þetta væri liður í verkefni ríkisstjórnarinnar í því að uppræta fátækt og lyfta tekjulægstu hópunum.

Hv. þingmaður spurði mig hvað ég ætti við með gúmmítékkanum sem ég nefndi hér í máli mínu. Þá er það auðvitað svo að það er ábyrgðarhluti að reka ríkið með halla. Það er auðvitað eitthvað sem á ekki að gera nema í brýnustu nauðsyn vegna þess að í því felst lífskjaraskerðing fyrir komandi kynslóðir á næstu árum. Það getur tekið ár að vinna það upp eða hreinlega áratugi. En einhvern tímann kemur að skuldadögum og þá er ég að vísa til þess að þessi hópur, 65 ára og eldri, er að njóta ávinnings og þessara fjármuna en það þurfa aðrir að borga fyrir þá síðar. Vissulega er ýmislegt gert en það er aldrei hægt að gera allt fyrir alla.

Þá komum við akkúrat að þessari forgangsröðun. Ég tel, bara eins og kemur hér fram, að þetta lágtekjuhlutfall sem ég nefndi í fyrri ræðu minni sé miklu hærra hjá aldurshópnum 30–44 ára. Hann er að berjast í bökkum núna umfram þessa eldri borgara.