almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni kærlega fyrir svarið við andsvari mínu. Ég skal bara hafa þetta stutt núna. Mig langar til að ræða hér í mínu seinna andsvari hópinn sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni að væri hópurinn sem hefði það best, væri í hæstu tekjutíundunum. Mér finnst mjög mikilvægt að þegar við tölum um tekjutíundir í þessu sambandi þá erum við að tala um tekjutíundir þess fólks sem nýtur greiðslna frá Tryggingastofnun. Mér finnst svolítið mikilvægt að ég fái hv. þingmann til að svara mér því hvort þetta fólk sé nokkuð ofsælt af sínum greiðslum, að það þurfi ekki einmitt að hjálpa því líka eins og kannski öðrum.