157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[23:21]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er vissulega rétt hjá hv. þingmanni, minnisblað velferðarráðuneytisins er akkúrat eins og þingmaðurinn lýsir. Sjálfur hefði ég kosið að fá ítarlegri upplýsingar um niðurbrot þessa hóps varðandi aðra þætti, eins og eignir og annað. Það var ekki en við gátum spurt fulltrúa frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu örlítið út í tekjugrunn Tryggingastofnunar en það er bara alltaf þetta klassíska sem ég hef klifað hér býsna oft núorðið, að það hefði til að mynda verið betra að hafa upplýsingar um akkúrat þennan hóp. Hann er mjög fjölmennur og það sækir að manni sá grunur að það hefði verið hægt að nota þessa milljarða með markvissari hætti, svo ekki sé fastar að orði kveðið.