almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. framsögumanni nefndarinnar fyrir hennar yfirferð á þessu máli. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál sem við erum að ræða hér og viljum koma alla leið. Það er sem sagt verið að hækka almenna frítekjumarkið upp í 60.000 kr., eða 720.000 kr. á ári, í skrefum til ársins 2028. Það er nákvæmlega það sem við höfum staðið fyrir á undanförnum árum í að vilja gera. Auðvitað hefði maður alveg viljað sjá meiri breytingar en þetta er mjög mikilvægt skref sem við erum að stíga hér. Við erum að ræða breytingar á almenna frítekjumarkinu; ef þú ert með greiðslur úr lífeyrissjóði þá hefur þetta áhrif á þær tekjur sem þú hefur þar en er síðan ákveðin skerðing umfram þetta frítekjumark eða, eins og hefur komið fram hér í kvöld, 45% skerðing umfram það. Það er auðvitað mikilvægt, að mínu mati, að stíga þetta skref til að tryggja að fólk sem leggur fyrir í lífeyrissjóði njóti ávinnings af því sem það gerir. Það er gríðarlega mikilvægt að styðja við fólkið og að þessi kerfi tali saman og séu sanngjörn og réttlát.
Við búum gríðarlega vel hér á Íslandi verandi með annars vegar öflugt lífeyrissjóðakerfi, stuðning frá hinu opinbera, frá Tryggingastofnun eða almannatryggingakerfinu, og síðan erum við auðvitað með séreignarsparnaðarkerfið til viðbótar. Þetta er eitthvað sem við þurfum að standa vörð um. Hluti af þeim breytingum sem verið er að tala um hér tengist aldursviðbót og að sú aldursviðbót haldi þegar öryrkjar fara á milli kerfa, sem sagt hefja töku ellilífeyris, en sá hópur, eins og hefur komið fram, er líklega með minnst lífeyrisréttindi og þar af leiðandi oftar en ekki í erfiðustu stöðunni. Það er gríðarlega mikilvægt að styðja við þennan hóp og að sá hópur njóti þeirra greiðslna sem hann hefur á þessum tímapunkti þegar hann hefur töku ellilífeyris.
Það skiptir miklu máli að í okkar kerfi, verandi með lífeyriskerfi sem fólk greiðir til, að það sé skilvirkt og sanngjarnt. Með þeim breytingum sem hafa verið gerðar á kerfinu á undanförnum árum þar sem iðgjöld hafa verið hækkuð er verið að tryggja hlutfall af meðalævitekjum. Það tekur 40 ár fyrir fólk að ávinna sér réttindi í lífeyrissjóði að fullu leyti og við erum sem samfélag að komast nær þeim stað að fólk sé að njóta fullra réttinda og þá er enn mikilvægara að þessi kerfi tali alveg saman.
Annað hefur svo sem komið fram í kvöld og ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra. Ég vil bara þakka nefndarmönnum fyrir samstarfið í nefndinni og ég bind miklar vonir við að þetta verði að lögum og styðji þannig við bakið á þeim hópi sem er í hvað erfiðastri stöðu í samfélaginu.