almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir framsögu í þessu máli og öðrum hv. þingmönnum sem hér hafa flutt ræður í kvöld. Jafnframt langar mig til þess að þakka öllum hv. nefndarmönnum í hv. velferðarnefnd fyrir samstarfið við meðferð málsins í nefndinni.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris og fleira. Frumvarpið varðar breytingar sem fram eru settar í fimm liðum. Lagt er til að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris í áföngum á næstu þremur árum úr 438.000 kr. í 720.000 kr. Þá er lagt til að aldursviðmið örorkulífeyrisþega sem fær greidda slíka viðbót falli ekki niður þegar viðkomandi nær ellilífeyrisaldri en gildandi lög kveða á um slíkt. Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar til að auka skýrleika laga um almannatryggingar og laga um heilbrigðisþjónustu í tengslum við vinnslu og miðlun persónuupplýsinga sem og tölfræðivinnslu í tengslum við nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi sem tók gildi 1. september síðastliðinn. Þá er lagt til að skilgreina hvaða aðilar teljist þjónustuaðilar í skilningi laga um almannatryggingar þannig að það taki ekki eingöngu til heilsugæslustöðva heldur allra heilbrigðisstofnana sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu einstaklinga og taka þátt í samstarfi við aðra þjónustuaðila um samhæfingu þjónustu. Að lokum: Fimmti punkturinn varðar það að í frumvarpinu er lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að skipa stjórn yfir Tryggingastofnun.
Varðandi fyrsta punktinn, sem er að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris í áföngum á næstu þremur árum, þá kemur skrefið að fara úr 438.000 kr. í 720.000 kr. að fullu til framkvæmda árið 2028. Þessar fjárhæðir samsvara því að um sé að ræða 36.500 kr. á mánuði og þegar full hækkun hefur náðst eru þetta 60.000 kr. á mánuði. Síðan er gert ráð fyrir því að þessar fjárhæðir taki einnig launa- og verðlagsbreytingum í samræmi við fjárlög hverju sinni í samræmi við 62. gr. laga um almannatryggingar.
Almennt séð má segja að umsagnaraðilar hafi verið margir hverjir jákvæðir fyrir hækkun almenna frítekjumarksins en aðrir umsagnaraðilar voru mótfallnir hækkuninni og töldu m.a. að hún væri ekki markviss leið til að lyfta greiðslum til tekjulægri ellilífeyrisþega þar sem hækkað frítekjumark næði til allra ellilífeyrisþega, þ.e. ellilífeyrisþega Tryggingastofnunar með aðrar tekjur. Hækkunin skili þannig engu til tekjulægsta hópsins, þ.e. þeirra sem eingöngu hafa tekjur í gegnum lífeyri Tryggingastofnunar. Ég kem aðeins betur að því hér á eftir.
Samkvæmt upplýsingum sem fram komu við meðferð málsins fyrir hv. velferðarnefnd er lagt til að hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega nái til allra sem hafa aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun og að hækkun almenna frítekjumarksins gagnist öllum ellilífeyrisþegum sem eru með aðrar tekjur en greiðslur frá stofnuninni umfram núverandi frítekjumörk. Ávinningur af hækkuðu almennu frítekjumarki nái til þeirra ellilífeyrisþega sem hafa tekjur umfram núverandi frítekjumark, sem er 36.500 kr. eins og áður sagði, og hækki í þrepum í 60.000 kr.
Samkvæmt tölfræði á vef Tryggingastofnunar eru efri mörk fyrstu tekjutíundar rúmar 100.000 kr. og er þá miðað við árið 2024. Það er metið að um 3% ellilífeyrisþega séu undir núverandi frítekjumörkum sem hafa þá ekki ávinning af hækkuðu frítekjumarki. Til þessa hóps er einmitt vísað í sumum umsögnum sem bárust nefndinni. Í þessum hópi má ætla að sé fólk sem áður fékk örorkulífeyri og aldursviðbót og haldi einmitt aldursviðbótinni eftir að það hefur töku ellilífeyris. Til þessa 3% hóps má ætla að sé náð að einhverju leyti með aldursviðbótinni.
Nú kem ég þá að aldursviðbótinni sem er aldursviðbót örorkulífeyrisþega, þ.e. það er lagt til að aldursviðbót örorkulífeyrisþega sem fær greidda slíka viðbót falli ekki niður þegar viðkomandi nær ellilífeyrisaldri en gildandi lög kveða á um það. Í ákvæðum frumvarpsins er kveðið á um að ellilífeyrisþegi sem uppfyllir skilyrði aldursviðbótar örorkulífeyrisþega eða hlutaörorkulífeyrisþega samkvæmt lögum um almannatryggingar fram til ellilífeyrisaldurs skuli áfram eiga rétt á aldursviðbót og aldursviðbótin skuli þá bætast við fjárhæð ellilífeyris.
Í upplýsingum sem hv. velferðarnefnd bárust við meðferð málsins fyrir nefndinni frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu kemur fram að í frumvarpinu sé lagt til að aldursviðbót sé greidd með sömu skilyrðum og gildi í nýja örorku- og endurhæfingarkerfinu og greiðist því þeim sem voru ungir að árum þegar greiðslur örorkulífeyris eða hluta örorkulífeyris hófust og er það í samræmi við tilgang viðbótarinnar. Það er mikilvægt að hverfa frá gildandi fyrirkomulagi um niðurfellingu aldursviðbótar þegar einstaklingur nær ellilífeyrisaldri. Örorkulífeyrisþegar eru áfram með örorku eftir 67 ára aldur og þeir hafa jafnframt haft takmarkaðri möguleika til að afla sér ellilífeyristekna sökum þess.
Eins og áður sagði eru þetta breytingar sem auka skýrleika laga um almannatryggingar. Ég ætla að skauta frekar hratt yfir það en það er lagt til í þessu frumvarpi að skilgreina hvaða aðilar teljist þjónustuaðilar í skilningi laga um almannatryggingar. Við umfjöllun um málið í hv. velferðarnefnd var nokkuð óljóst af hvaða ástæðum VIRK, sem er starfsendurhæfingarsjóður, væri sérstaklega tilgreindur sem þjónustuaðili. Við óskuðum eftir upplýsingum frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og nánari skýringum varðandi þetta. Í minnisblaði sem barst frá ráðuneytinu af þessu tilefni kom fram að VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður væri eini aðilinn sem starfar á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða og samkvæmt samningi við ráðherra og því verður sjóðurinn sérstaklega tilgreindur í 1. gr. frumvarpsins.
Varðandi stjórn, sem sagt að horfið verði frá því fyrirkomulagi að skipa stjórn yfir Tryggingastofnun, þá er það með þeim hætti að í greinargerð með frumvarpinu og minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins kemur fram að stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra hafi almennt óljósa stöðu og hlutverk og bent hefur verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns stofnunar. Þá hafi Ríkisendurskoðun vakið athygli á því að oft sé stjórnskipuleg staða þeirra óskýr. Með frumvarpinu er sem áður segir lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi er skipuð sé stjórn yfir Tryggingastofnun. Við í meiri hlutanum tökum undir það sem fram kemur í greinargerðinni með frumvarpinu, að stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra þyki almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns. Með því að fella brott ákvæði um stjórn Tryggingastofnunar megi ná fram hagræðingu í ríkisrekstri án þess að það komi niður á opinberri þjónustu.
Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.