157. löggjafarþing — 52. fundur, 18. des. 2025.
Breyting á starfsáætlun.
Forseti hefur ákveðið, að höfðu samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka, að gera breytingar á starfsáætlun Alþingis í upphafi árs 2026. Samkvæmt starfsáætlun eru nefndadagar 14. og 15. janúar en ákveðið hefur verið að hafa þingfundi þá daga. Í stað þeirra yrðu nefndadagar 21. janúar og 4. febrúar en þeir dagar voru þingfundadagar samkvæmt starfsáætlun. Þannig riðlast ekki fjöldi þingfunda og nefndafundardaga á vetrarþingi.