breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um tvær breytingartillögur frá okkur í Sjálfstæðisflokknum. Annars vegar er hér ein létt breytingartillaga til að létta örlítið undir með fjölskyldum í landinu sem hyggjast kaupa sér ferðavagn til að ferðast með um landið, ferðast innan lands, um það að afnema vörugjöld þar eins og er í öllum löndunum í kringum okkur. Í þessu frumvarpi er verið að hækka þau eins og svo margt annað. Hins vegar er þetta breytingartillaga til að tryggja það, eða alla vega draga úr líkunum á því, að við séum hér að samþykkja brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ég hvet þingheim því til að styðja þetta mál og gera þannig vont mál örlítið skárra.