breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég hvet þingheim til að breyta hér atkvæðagreiðslu sinni, sérstaklega þegar kemur að því að hækka vörugjöld á hjólhýsi og annað sem venjulegt fjölskyldufólk notar til þess að ferðast um Ísland á sumrin. Ég held að við ættum nú, miðað við þær álögur og skatta sem verið er að leggja á ferðaþjónustuna, a.m.k. að reyna að sýna smá viðleitni til þess að lækka álögurnar á heimilin í landinu og gera fólki kleift að kaupa sér húsvagna og annað til að ferðast um landið og eyða þá peningum innan lands frekar en erlendis.