vinnubrögð í meðferð mála.
Frú forseti. Í dag á dagskrá þingfundar er mál er varðar hlutdeildarlán, mál sem er afar mikilvægt fyrir heimilin í landinu og við í Framsókn erum stolt að hafa verið hlutaðeigendur að þegar það hófst. En óháð innihaldi málsins þá vil ég koma á framfæri vinnubrögðunum í kringum málið. Þingleg meðferð mála á að byggja á vönduðu ferli, gagnsæi og virðingu fyrir Alþingi sjálfu. Það er því miður ekki raunin hér. Málið fór ekki í samráðsgátt. Það var lagt fram eftir frest um framlagningu. Það var mælt fyrir því á föstudagskvöldi og á mánudagsmorgni voru gestir boðaðir til nefndarinnar. Gestirnir höfðu ekki, eðli málsins samkvæmt, raunhæfan tíma til að kynna sér málið, hvað þá að skrifa umsagnir. En í meðferð málsins núna undanfarna daga höfum við verið að fá til okkar ráðuneytin, Seðlabankinn sendi mjög alvarlegar athugasemdir hvað þetta mál varðar. Það voru gerðar breytingar á málinu í kjölfar þess. Hins vegar var ekki kallað aftur eftir áliti Seðlabankans heldur átti þetta bara að duga. (Forseti hringir.) Við höfum engar forsendur fyrir því hér hvernig við getum greitt atkvæði um þetta mál því að málið er þannig búið auk þess sem gerðar voru breytingar (Forseti hringir.) á fjárlögum einmitt eftir athugasemdir í velferðarnefnd hvað það varðar. Þá var ekki búið að hugsa fyrir því. Ég vil bara vekja athygli á þessu hér í dag, frú forseti.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann.)