157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

vinnubrögð í meðferð mála.

[10:37]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Ég vil taka undir ábendingu um athugasemdir hv. þm. Ingibjargar Isaksen hvað vinnubrögðin í þessu máli varðar. Í jómfrúrræðu minni hér á þingi áréttaði ég mikilvægi þess að við vöndum vinnuna í öllum málum. Í þessu máli, sem er mikilvægt, hefur verið nokkur æðibunugangur. Það var mælt fyrir málinu hér á föstudagskvöldi og gestir mættir fyrir nefndina á mánudagsmorgni án þess að hafa haft tækifæri til að kynna sér málið, án þess að hafa haft tækifæri til að skrifa umsagnir. Alvarlegast er þó að undir rekstri málsins í velferðarnefnd komu fram alvarlegar ábendingar og athugasemdir Seðlabanka Íslands. Brugðist hefur verið við því að nokkru leyti. En okkur í nefndinni var meinað um að spyrja Seðlabankann, fá aftur upplýsingar frá Seðlabankanum um staðfestingu þess að ríkisstjórnin standi með Seðlabankanum í baráttu sinni við að lækka hér vexti og verðbólgu. Það var ekki gert.