157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

vinnubrögð í meðferð mála.

[10:39]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég tek undir ræður ræðumanna á undan mér. Við þetta má bæta að eftir umsögn Seðlabankans, og af því birtust fréttir, var haldið fram í nefndinni að þetta væri allt misskilningur hjá Seðlabankanum, hann væri að misskilja frumvarpið og reikna vitlaust forsendur. Allt að einu eru lagðar fram breytingartillögur, að sögn til þess að koma til móts við umsögn Seðlabankans, þannig að allt tal um að Seðlabankinn sé að misskilja málið hlýtur að falla um sjálft sig, eða hvað? Á því höfum við ekki fengið skýringar og það er bagalegt. Í gær var hér 2. umræða um málið. Hún var ágæt, það var fámennt en góðmennt, það má svo sem segja það. Í þessu máli felst það m.a. að verið er að færa fé úr almenna íbúðakerfinu, úr félagslega húsnæðiskerfinu, úr þeim potti sem eru til ráðstöfunar til hlutdeildarlána og almennra íbúða, þ.e. almennra íbúða sem félagslegt kerfi. Það er verið að færa fé úr félagslega kerfinu í kerfi hlutdeildarlána. Það kann að vera gott, það er að vísu á skjön við markmið þessarar ríkisstjórnar, hefur mér heyrst. Það kann hins vegar að vera ágætismál (Forseti hringir.) en þetta þarf að ræða og hefði þurft að ræða miklu betur hér í þingsal.