157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

vinnubrögð í meðferð þingmála.

[10:40]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir þessar athugasemdir kollega minna úr hv. velferðarnefnd; það er með ólíkindum asinn allur sem var á þessu máli og enn einu sinni í stóru og viðamiklu máli þar sem ekki er gefinn nægur tími til að fara ígrundað yfir möguleg áhrif af slíkum breytingum, í þessu tilviki á þessu frumvarpi um hlutdeildarlán. Ég tek undir það að athugasemdir Seðlabanka Íslands voru mjög alvarlegar. Það var látið að því liggja eða reynt að útskýra það stuttu seinna að þarna væri um misskilning að ræða, rangar forsendur — að ekki skyldi hafa orðið við því að fá þá mat Seðlabankans aftur á því og eiginlega viðhorf þeirra til þess hvort þeir hefðu í upphaflegri umsögn sinni verið með rangar forsendur og því orðið eins harðorðir og raun ber vitni. Það er vont að það sé ekki orðið við þessu (Forseti hringir.) og hlustað á fulltrúa í hv. velferðarnefnd hvað þetta varðar til þess að við áttum okkur betur á mögulegum áhrifum þessara breytinga.