157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

fjármálafyrirtæki.

190. mál
[10:42]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegi forseti. Þetta er innleiðingarmál sem er mjög slæmt mál. Þetta hentar ekki Íslandi og sérstaklega ekki núna. Það á að hækka kröfu um eigið fé á verktaka það mikið að það fer þannig að ekkert verktakafyrirtæki hefði sennilega staðist þetta á undanförnum árum. Lán fyrir fyrstu kaupendur verða dýrari eða fyrir þá sem eiga lítið eigið fé. Er það það sem við viljum gera í dag í því vaxtaumhverfi sem við búum við? Það er ekki bara ég sem segi að þetta sé afleitt núna heldur mun Seðlabankinn nýta fulla heimild til að innleiða þetta ekki fyrr en eins seint og þurfa þykir, samkvæmt þessari innleiðingu. Miðflokkurinn verður því rauður.