157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[10:47]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Dagarnir eru orðnir langir hérna á þingi og þegar maður skemmtir sér jafn mikið og maður hefur gert núna undanfarna daga þá rennur þetta allt saman. Undir liðnum fundarstjórn forseta áðan nefndi ég að ég hefði rætt hlutdeildarlánin í gærkvöldi. Það er alls ekki þannig. Ég ræddi nefnilega um þetta mál sem hér er að fara til atkvæðagreiðslu og bið þingheim að virða mér það til vorkunnar að þetta rennur allt saman í gleðinni hér. Sú umræða var fámenn en hún var góðmenn. En þetta mál er sama marki brennt og mörg önnur mál hér sem hafa ekki fengið nægilega þinglega meðferð. Þetta er gott mál en greinargerðin er algerlega vanbúin. Af umræðum í gær má greina að hún hefði mátt vera betri. Hér er blandað saman líka mörgum málum sem hefðu að ósekju mátt eiga sviðið eitt og sér. Þetta eru þrjú mál í einu frumvarpi. Miðflokkurinn mun styðja aldursuppbótina en sitja hjá þegar kemur að hækkun frítekjumarks, m.a. vegna umræðu sem fram hefur komið í hv. velferðarnefnd.