157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[10:48]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla að gera hér athugasemdir við skort á vandaðri lagasetningu. Hv. þm. Sigríður Á. Andersen hefur verið að taka saman þrjá ólíka þætti frumvarpsins og það hefðu örugglega allir þættirnir átt heima í sér frumvarpi. Það var lagt fram hér í þinginu 18. nóvember, það var mælt fyrir því tveimur dögum seinna og það tók enginn þátt í 1. umræðu. Á því berum við öll í þessum sal ábyrgð. Frumvarpið sem slíkt var bara ekki nægilega upplýsandi fyrir þingmenn. Bæði SA og ASÍ gera verulegar athugasemdir við það hvernig ráðuneytið skilaði frá sér samráðskafla þessa frumvarps. Þess var í engu getið hverjar hefðu verið athugasemdir þessara stóru og mikilvægu umsagnaraðila þannig að þingheimur hafði ekki tækifæri til að átta sig á því en þau segja bæði að það þurfi frekari greiningar til og (Forseti hringir.) hér sé mögulega ekki verið að fara vel með ríkisfé. Það er mjög erfitt, frú forseti, að taka afstöðu til mála þegar þau koma svona vanbúin inn í þingið. Ég vil hvetja hæstv. forseta til að tryggja það að svona gerist ekki aftur.