almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Þetta mál hefur fengið töluvert mikla umræðu í hv. velferðarnefnd. Jafnvel þó svo að það hafi komið dálítið hratt inn þá tókum við á móti mörgum gestum og það var upplýst. Hefði greinargerðin getað verið þykkari? Sjálfsagt. En við meðferð málsins hjá nefndinni fékk þetta bara ágætisvinnslu. Ég vil taka það fram að það hefur verið nefnt hér á undan mér að þetta varði þrjú atriði. Þetta varðar reyndar fimm atriði. Þetta varðar frítekjumark, aldursviðbót, vinnslu miðlægra persónulegra upplýsinga, að stjórn TR sé lögð niður og síðan varðar þetta líka þjónustu og hverjir yrðu skilgreindir sem þjónustuaðilar. Aldursviðbótin og frítekjumarkið vinna kannski dálítið vel saman. Þeir sem fá aldursviðbótina eru kannski oft og tíðum í lægsta þrepinu og fá kannski lítið út úr frítekjumarkinu. (Forseti hringir.) Þannig að þetta vinnur vel saman og við náum vel utan um þá sem njóta greiðslna frá Tryggingastofnun.