157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[10:58]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég tek undir varðandi hraðann sem er á þessu máli, eins og mörgum öðrum sem við erum að horfa upp á hérna núna síðustu daga og vikur. En það sem mér hefur fundist athyglisverðast við þetta og kannski alvarlegast er sú gagnrýni sem kemur fram í umsögnum, ekki síst frá ASÍ, um að hér sé um of almenna aðgerð að ræða. Við erum öll sammála því að við viljum gera vel og betur við tekjulægstu einstaklingana og hópinn í samfélaginu. En það skiptir máli hvernig það er gert. Við erum að tala um 5,6 milljarða kr. hækkun sem þetta mun hafa í för með sér. Það kemur mjög ákveðið fram, t.d. í umsögn ASÍ, að þetta sé ekki leiðin til að koma sem best til móts við tekjulægstu einstaklingana. Eins og sagt er beint í umsögninni, með leyfi forseta, þá er þetta „ekki markviss leið til að uppræta fátækt“ og getur jafnvel búið til nýja mismunun. Það er eiginlega það sem mér finnst alvarlegast við þetta, að aðgerðin sé metin of almenn. (Forseti hringir.) Það er eitthvað sem hefði kannski þurft að horfa til þegar verið var að útdeila þessum gríðarlegu fjármunum.