almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Hér er greitt atkvæði um þá tillögu að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar. Það hafa verið áform um það lengi og menn muna það hvernig hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra ákvað að skipa ekki í stjórnina af því að hún hefði áform um að leggja stjórnina niður. Það hefur nú tekið meira en heilt ár að leggja fram tillögu um það. Ég hins vegar leggst gegn þessari breytingu á þeirri forsendu að hún er illa rökstudd, algerlega órökstudd. Hún er rökstudd eingöngu með því að hlutverk stjórnarinnar sé óformað. Ég hefði talið fara betur á því að efla stjórnina og forma hlutverk hennar betur. Tryggingastofnun er stofnun sem veltir 260 milljörðum kr. Að ætla að horfa í það að, eins og hefur verið nefnt, það sé verið að spara stjórnarkostnað upp á nokkrar milljónir á ári er ekki málefnalegur málflutningur. Ráðuneytið hefur ekki tök á að veita stofnuninni þá stjórn eins og ætlast er til að stjórnir í svona stofnunum geri. Miðflokkurinn leggst gegn þessari breytingartillögu.