almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Hér eru greidd atkvæði um eitt af þremur til fimm meginefnum þessa frumvarps sem er aldursviðbót ellilífeyrisþega. Hv. framsögumaður málsins, formaður hv. velferðarnefndar, lýsti því í ræðu sinni hér í gær hversu erfitt það væri að fóta sig í umræðu um þessi tryggingamál og um þetta bótakerfi okkar sem veltir þó 1000 milljörðum. Það er auðvitað umhugsunarvert þegar þingheimur á erfitt með að átta sig á hugtökum og hvað snýr upp og niður í þessu. Það er svo sannarlega þegar kemur að þessari aldursviðbót sem kemur til viðbótar við þá miklu kerfisbreytingu sem varð hér í haust á öllu þessu kerfi. Greinargerðin er algerlega óboðleg að þessu leyti.
Við meðferð málsins í nefndinni komu fram gagnlegar upplýsingar og það er alveg ljóst að það eru einhverjir einstaklingar í félagsmálaráðuneytinu sem skilja málið ákaflega vel. Ég furða mig á því að þær upplýsingar sem nefndin fékk hafi ekki ratað í greinargerðina öðrum til upplýsingar því að það eru fleiri þingmenn (Forseti hringir.) og nefndarmenn hv. velferðarnefndar sem þurfa að kunna skil á þessum málum.