almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég ætla að gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég styð þessa breytingu. Hér erum við að breyta aldursviðbótinni til að tryggja að aldursviðmið haldist þegar einstaklingur sem hefur verið á örorkubótum alla tíð eða þegar hann hefur töku ellilífeyris. Hann heldur þeirri greiðslu á ellilífeyri jafnframt. Þetta er gríðarlega mikilvægt. Þetta er sá hópur sem er viðkvæmastur. Þetta er fólk sem missir starfsgetu snemma á starfsævinni og hefur minnst réttindi úr lífeyrissjóði og þar af leiðandi skiptir það sköpum fyrir þennan hóp að halda þessum greiðslum inn í ellina líka. Þetta er virkilega mikilvægt og gott mál og ég segi já við þessu.