almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Hér er komið að öðru meginefni frumvarpsins af þessum þremur til fimm meginefnum þessa frumvarps. Miðflokkurinn studdi aldursviðbót ellilífeyrisþega, það frumvarp sem við greiddum hér atkvæði um áðan. Hér er hins vegar um að ræða annað meginmálið sem er hækkun frítekjumarks aldraðra. Í umsögnum kom alveg skýrt fram frá öllum umsagnaraðilum, utan þeirra umsagnaraðila sem beinlínis eru að fara að þiggja þessa hækkun, frá aðilum vinnumarkaðar og þeim sem gerst þekkja, og má segja atvinnuumsagnaraðilum um þessi mál, að í ljósi þess að hér er um að ræða hækkun ríkisútgjalda upp á 5,7 milljarða þá er þessi aðgerð algerlega óformuð að því leyti að hún virðist ekki ná því markmiði sem að er stefnt með frumvarpinu sem er það að grípa þá aldraða sem verst hafa það. Miðflokkurinn ætlar að sitja hjá í ljósi þess (Forseti hringir.) í þeirri von og með þeim væntingum að þetta mál verði endurskoðað fram til ársins 2027 þegar þetta ákvæði á að taka gildi.