157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[11:06]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég styð þessa breytingu samkvæmt þessari grein. Hér er verið að hækka almennt frítekjumark almannatrygginga úr 36.500 í 60.000 kr. á mánuði í þremur skrefum til ársins 2008. Sú fyrsta kemur núna 1. janúar 2026 upp á 5.000 kr. og síðan í nokkrum skrefum. Þetta er mikilvægt og þetta snertir skerðingar á greiðslum þegar þú hefur greiðslur úr lífeyrissjóði og færð greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli fyrir viðkvæmasta hópinn í landinu. Þetta snertir þá einstaklinga sem fá greiðslur úr almannatryggingakerfinu og er gríðarlega mikilvægt að við séum að breyta hér í dag og draga úr skerðingum.