almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Mér finnst sláandi að hlusta á málflutning Sjálfstæðisflokks og Miðflokks hér í dag. Það er sláandi og afhjúpandi. Hvað erum við að gera með þessu máli? Við erum að auka ráðstöfunartekjur eldra fólks, við erum að lækka jaðarskattbyrði eldra fólks; þetta er skattalækkunarmál. Við erum að tryggja að eldra fólk sem hefur unnið jafnvel slítandi störf alla ævi njóti meiri ávinnings af lífeyrisréttindum sem það hefur unnið sér inn. Og nei, þetta snýst ekki um bætur, þetta snýst um réttindi. Þetta snýst um að vinda ofan af skerðingum sem stórjukust hérna á síðustu árum eftir því sem einmitt þessu sama frítekjumarki var haldið í lágmarki og það var látið rýrna að raunvirði. Þetta er gott mál. Við erum að laga kerfin okkar og við erum að draga úr skerðingum. Mér finnst það afhjúpandi og ég vona að eldra fólk sem fylgist með þessari atkvæðagreiðslu átti sig á því hvernig atkvæði eru að falla í dag; (Forseti hringir.) hvaða flokkar eru í varðstöðu með skerðingum og hvaða flokkar það eru sem eru að vinda ofan af þeim og draga úr skerðingum þannig að eldra fólk (Forseti hringir.) njóti meiri ávinnings af þeim réttindum sem það hefur unnið sér inn um langa ævi. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )