157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[11:10]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um hækkun almenna frítekjumarksins til eldri borgara hér í landinu. Það er mikilvægt að það hækki í þrepum næstu árin. Mig langar samt sem áður að koma hér aðeins varðandi söguskýringar; árið 2018 var farið í heildarendurskoðun á þessu kerfi og settir töluverðir fjármunir í að einfalda þetta og taka á og draga úr skerðingum í kerfinu. Það var mjög jákvætt skref þegar það var tekið og síðan var þetta almenna frítekjumark hækkað einmitt í tíð síðustu ríkisstjórnar í fyrra og nú er verið að halda því áfram, sem er mikið fagnaðarefni. Þetta er mjög jákvætt, að hér sé verið að hækka almenna frítekjumarkið, einmitt bara í þrepum og á að enda árið 2028. Mig langar samt sem áður að hvetja hæstv. ríkisstjórn í ljósi þessa að einblína á þann hóp sem hefur það hvað erfiðast í samfélaginu og reyna að finna leiðir til að bæta þeirra kjör með einhverjum hætti, hvort sem það er einhver viðbót við það sem þau hafa núna mánaðarlega. (Forseti hringir.) Ein desemberuppbót bjargar ekki öllu árinu.