157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[11:11]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er verið að greiða áfram atkvæði um þessa þrepaskiptu hækkun á frítekjumarki ellilífeyris. Miðflokkurinn styður frítekjumark ellilífeyris og það er nauðsynlegt að hafa í þessu tvöfalda kerfi sem við höfum enn þá á meðan Íslendingar eru enn þá að safna sér í sjóði lífeyrissjóðanna, sem markmiðið er auðvitað að taki yfir þetta kerfi og væri óskandi að enginn þyrfti á ellilífeyri frá almannatryggingum að halda. Það væri óskandi og það á að vera markmið þessarar ríkisstjórnar. Það markmið næst ekki þegar skattar eru hækkaðir upp úr öllu valdi, eins og er verið að gera hér þessa síðustu dagana hérna á þingi, á vinnandi fólk; þá næst ekki það markmið að fólk þurfi ekki á almannatryggingakerfinu að halda. Hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kemur hingað upp og heldur að þetta sé skattalækkunarfrumvarp. Nei, þetta er reyndar skattahækkunarfrumvarp vegna þess að þetta frumvarp kostar 5,7 milljarða á ári. Það þarf að fjármagna það og það gerir enginn nema þeir sem eru á vinnumarkaði og reyndar eldri borgarar sem borga líka skatta. Við styðjum frítekjumark aldraðra eins og það hefur verið og við styðjum einhverja breytingu á því, (Forseti hringir.) Miðflokkurinn styður breytingu á því. En það er útilokað að það komi fram svona frumvarp sem er algerlega órökstutt, óútfært og í andstöðu við alla sem þekkja til á markaði sem benda á að þetta er ekki (Forseti hringir.) að ná til þeirra sem verst hafa það í hópi eldri borgara.