kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Þá höldum við áfram í þessu áhugaverða og einfalda máli. Það sem mig langar að leggja mesta áherslu á hér í lok þessarar umræðu er að þrátt fyrir að ég sé í grunninn algjörlega á móti þessu máli, þar sem það hefur sýnt sig að það skapar mörg flækjustig og ýmis vandamál, þýðir það ekki að maður megi ekki ræða það hér og leggja til breytingar. Breytingar sem miða að því að tryggja mannúðlega framkvæmd á málinu. Það hefur verið gerður fjöldinn allur af tæknilegum breytingum á þessu máli en það hefur nú verið rætt fjórum sinnum, á einn eða annan hátt, hér á Alþingi. Þetta eru allt saman tæknilegar útfærslur, en í grunninn hefur ekki verið brugðist við þeim áhyggjum sem hagaðilar og einstaklingar hafa af framkvæmdinni, kostnaðinum og öðru slíku. Það hefur ekki verið brugðist við stóru áhyggjunum sem þetta mál vekur. Þrátt fyrir að málið hafi komið svona oft fram er enn að koma inn langur listi af atriðum sem þyrfti að skoða. Okkur, hv. nefndarmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd, hafa stanslaust borist nýjar ábendingar um hversu erfið framkvæmdin er. Enn eru að koma upp tæknilegir erfiðleikar, ekki bara einn eða tveir heldur tugir mismunandi atriða. Til dæmis hefur enn ekki verið hægt að skrá inn ökutæki sem eiga að koma inn í kerfið á næsta ári til þess að búa til meðaltal áður en áætlunin fer að telja. Það hefur ekki enn verið gert.
Í gær sendi einn hagaðili enn einn tölvupóstinn þar sem hann tók saman nokkur atriði um þær afleiðingar sem kílómetragjaldið er að fara að hafa. Afleiðingarnar eru þær að fyrirtæki þurfa að fara að draga saman. Það munu koma uppsagnir hjá fyrirtækjum vegna kílómetragjaldsins. Yfir hundrað samningar við íþróttafélög eru í uppnámi. Markaðskostnaður ferðaþjónustufyrirtækja dregst saman. Einni ökutækjaleigu var bent á það í gær að þar sem ekki er hægt að skrá kílómetrastöðuna fyrr en 1. janúar, á nýársdag, ætti hún einfaldlega að hringja í viðskiptavini sína á nýársdag og spyrja um kílómetrastöðuna. Það væru 8 þúsund símtöl hjá einu fyrirtæki á nýársdag. Svo hafa komið upp spurningar um það hvernig leigurnar virka yfir mánaðamótin eða áramótin. Þetta eru tugir milljóna króna yfir áramótin sem ekki verður hægt að innheimta. Ég er hér aðeins að stikla á stóru. Ég hef ekki tíma til að fara yfir alla þá annmarka sem eru á málinu.
Því legg ég fram breytingartillögu hér. Hún er í takt við það sem gert er vegna þungaflutninga í þessu máli, þannig að þau ferðaþjónustufyrirtæki sem eru búin að selja leigur og geta ekki innheimt gjaldið fái einhverja aðlögun meðan kerfið er ekki tilbúið, meðan allt umfangið er að komast af stað og meðan verið er að koma því þannig fyrir að hægt sé að selja þjónustu ferðaþjónustunnar með þessu gjaldi inni í verðinu. Breytingartillagan er ekki að gefa ferðamönnum afslátt. Hún er alls ekki að gefa ferðamönnum afslátt. Hún er að reyna að hjálpa íslensku atvinnulífi; atvinnulífi sem skaffar fólkinu í landinu störf, markaðssetur Ísland, styrkir íþróttastarf í landinu og skapar velferðina á Íslandi. Við höfum bent á fjölda atriða í þessu máli. Við héldum um stund að einn stjórnarþingmaður hefði séð ljósið og lofað endurmati þegar búið var að upplýsa um allar þessar afleiðingar. En svo virtist það ekki eiga við nein rök að styðjast. Gefnar voru út væntingar, en enginn vilji virðist vera hjá meiri hlutanum hér á Alþingi til að hlusta á þessi varnaðarorð, þessar miklu áhyggjur og annað sem hefur komið inn.
Mig langar að taka eitt dæmi um hvernig kílómetragjöldin munu hafa áhrif á unga stúlku sem býr hér í nágrenni við höfuðborgarsvæðið og keyrir í háskólann á Toyotu Yaris alla virka daga. Hún keyrir Toyota Yaris, lítinn og mjög sparneytinn bíl. Hún mun þurfa að borga 21.000 kr. í kílómetragjald á hverjum mánuði. Hvað mun hún spara mikið í eldsneytiskostnað? Ef eldsneytisgjöldin lækka eins og sagt er, þá verða það kannski 5.000 til 6.000 kr. á mánuði. Þannig að háskólastúlkan á Suðurlandi er að fara að borga 15.000 kr. meira á mánuði fyrir að sækja sitt háskólanám, í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. En viti menn: Ef unga stúlkan ætlar að endurnýja Yarisinn sinn eftir áramót, þá verður hann búinn að hækka um 700.000 kr. til 1 milljón í verði vegna vörugjalda. Hver er vaxtakostnaðurinn af bílaláninu vegna þess? Hver eru verðbólguáhrifin? Þetta er það sem hæstv. ríkisstjórn er að bjóða okkur upp á, algjörlega að óþörfu.
Einn frumkvöðull hefur haft samband við okkur, frumkvöðull sem er að framleiða lífdísil. Lífdísill verður eina umhverfisvæna innlenda eldsneytið sem þarf að bera fullt kílómetragjald. Ef þú keyrir á lífdísil færðu ekki afslátt af kílómetragjaldinu eins og þegar aðrir innlendir orkugjafar eru notaðir, svo sem metan og rafmagn. Þarna er enn einn flækjufóturinn. Eins og ég hef haldið fram í umræðunni hér hefur núverandi kerfi verið í gildi frá því að við gáfumst upp á síðasta kílómetrakerfi. Ýmis kerfi hafa verið aðlöguð í gegnum tíðina, svo sem vegna íblöndunarefna, lífdísils, litaðrar olíu og vegna fornbíla. Þetta er allt saman eitthvað sem búið er að útfæra og þróa í gegnum tíðina. Nú fer þetta allt á byrjunarreit. Við höfum einnig fengið umsögn frá Félagi eldri borgara í Reykjavík þar sem lýst er raunverulegum og rökstuddum áhyggjum af því að eldra fólk sem vill hafa sína hluti á hreinu sé ekki allt með tölvupóstföng og ekki allt með aðgengi að island.is. Ég veit að þetta gengur mjög vel hjá mörgum eldri borgurum. Margir eldri borgarar eru mjög tæknilega hæfir og búnir að græja þetta allt saman. En aðrir eiga í vanda með þetta og það verður að viðurkenna það að stjórnkerfið hefur ekki komið vel fram við þann hóp í mörgu öðru. Við erum búin að ganga svo hratt inn í tækniöldina að margir seinfærir hópar, eða hópar sem hafa ekki náð langt í tæknifærni eða tæknileikni, verða svolítið út undan. Það þarf að laga. Þá er ekkert á bætandi að búa til kerfi sem þarf helst að vera í mánaðarlegri notkun svo vel eigi að vera. Ef kílómetragjaldið er ekki fært mánaðarlega til bókar getur það skapað háa bakreikninga og háa skattreikninga. Fyrir fólk á lægri tekjum getur slíkt sett mikið strik í heimilisbókhaldið og valdið miklum áhyggjum ef það fær háan og óvæntan reikning frá Skattinum. Fólk sem hefur minna á milli handanna gerir ráðstafanir. Það sér hvað er mikið til ráðstöfunar eftir mánuðinn og getur þá ákveðið hvort það hefur efni á að setja eldsneyti á bílinn. En það er algjörlega ómögulegt að vita fyrir fram hvaða reikning það mun fá frá Skattinum.
Ég get ekki lokið máli mínu um þetta mál, hæstv. forseti, án þess að nefna þær alvarlegu afleiðingar sem þetta hefur um land allt. Ekki nóg með að 110 samningar við íþróttafélög séu í uppnámi hjá einu fyrirtæki, heldur þurfa íþróttafélögin líka, á sama tíma og þau missa styrki og samninga frá bílaleigunum, að borga bílaleigunum hærra gjald, kílómetragjald, hærra útleigugjald og hærri vörugjöld til þess að sækja íþróttamót. Flutningafyrirtækin þurfa að fara að borga mun hærri gjöld sem kúnninn mun að lokum borga. Samkeppnishæfni landsbyggðarinnar er að dragast saman. Ef ferðaþjónustan á landsbyggðinni dregst saman og flutningskostnaðurinn hækkar verður erfiðara að reka fyrirtæki með vöruframleiðslu sem þarf að komast á markað. Þetta eru margþættar áhyggjur og margþætt vandamál sem eru að skapast hér og sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er að fara að samþykkja hér á eftir með galopin augun. Á sama tíma er samdráttur í íslensku efnahagslífi.
Virðulegur forseti. Ég vil hér að lokum vara við öllum þeim fjölbreyttu og alvarlegu afleiðingum sem samþykkt þessa máls hefur og benda á að öllum grunnbreytingatillögum okkar í minni hlutanum við þetta mál hefur verið hafnað. Það hefur nánast öllu verið hafnað, sérstaklega ef það kostar einhvern pening. Fjöldi breytinga hefur verið gerður á þessu máli, aftur og aftur, af því að það er flókið og umfangsmikið en það var allt eftir því sem stjórnkerfið óskaði eftir sjálft. Öllu sem myndi auka hagræði stjórnkerfisins var breytt en því sem eykur hagræði og hagkvæmni fyrir atvinnulífið og fjölskyldur í landinu var hafnað.