kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Vissulega hef ég haft miklar efasemdir um þetta frumvarp og það er alveg á hreinu að ég er á móti því. En það sem veldur mér á þessum tímapunkti hvað mestum áhyggjum er hvernig Alþingi Íslendinga getur leyft sér að ætla að samþykkja lög sem við vitum að fyrirtækin hér á landi muni mörg hver ekki geta framfylgt. Það er óboðlegt að ætla að samþykkja lög sem við vitum að er ekki hægt að framfylgja. Því langar mig að spyrja hv. þingmann í fyrsta lagi: Þegar Skatturinn er búinn að vera að innheimta kílómetragjöld í næstu tvö ár eru enn þá miklir annmarkar á innheimtu gagnvart til að mynda bílaleigum. Við fengum minnisblað í gær sem segir að þeir ætli reyndar að vera tilbúnir í febrúar. Það er samt rúmur mánuður í það. Þetta er búið að vera í tvö ár. En fyrirtækin, þau mega hafa fimm og hálfan dag — og inni í þessu tímabili eru jólin og áramótin, fimm og hálfan virkan dag, og þá er ég að tala um með Þorláksmessu og hálfum gamlársdegi — til að vera tilbúin með sín kerfi. Ég spyr hv. þingmann: Telur hann raunhæft að framfylgja þessum lögum? Og lykilspurning, eins og við fengum hér í morgun: Hvernig getum við hér á Alþingi, eða þeir sem samþykkja lögin, ætlast til þess, áttar þingmaður sig á því, að þegar bílaleigur eru til að mynda búnar að taka bensín og eru með fulla tanka, við erum að tala um tugi þúsunda bíla á öllum bílaleigum — eiga þær að borga tvöfalt gjald fyrir notkun? Ég veit að bara ein bílaleiga er að borga kannski um 30 milljónir út af þessu einu. Er þetta sanngjarnt? Er þetta skýr skattheimta? Ég er með fleiri spurningar í næsta andsvari.