kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það er nefnilega stóra málið, þetta er allt svo óljóst. Óskýr skattheimta. Ógagnsæ. Fyrirsjáanleikinn er enginn. Undirbúningurinn er enginn. Hér geta sumir haldið því fram að þetta sé einhver hagsmunagæsla fyrir bílaleigur og annað slíkt. Jú, jú, hér er bara atvinnulíf í landinu; atvinnulíf þar sem hafa verið launahækkanir, þar sem hefur komið tollastríð, atvinnulíf sem fyrir ekki svo löngu þurfti að takast á við Covid, atvinnulíf sem er búið að vera í háum vöxtum og verðbólgu. Nei, þá kemur hér frumvarp sem skapar enn meiri óvissu. Já, borga tvöfalt, eins og hv. þingmaður kom inn á. Allur flotinn fullur af eldsneyti yfir áramótin af því að hverjum einasta bíl er skilað þannig. Svo byrjar hann að nýta það eldsneyti og þá er hann á kílómetragjaldi. Það er ekki hægt að skrá inn kílómetrastöðuna núna. Það er ekki hægt að innheimta af þeim bílum sem þeir hafa selt fram í tímann, sem eru tugþúsundabókanir. Það er ekki hægt. Það er vitað, reynslan af rafmagnsbílakílómetragjaldinu sýnir það, að þú hefur í mesta lagi svona 70% innheimtu af þessum gjöldum. Það er líka umstangið. Hvað þarf að borga mikið í færslugjöld í bókhaldskerfinu fyrir þetta? Hvað þarf að hafa marga starfsmenn í að skrá þetta? Þetta eru þúsundir bíla. Það er algjörlega óraunhæft að þetta muni einhvern veginn ganga upp. Þetta mun verða langt fram á næsta ár þar sem verið er að vinna í alls kyns bakreikningum, afstemmingum og forritunarvillum og einhverju svoleiðis. Það þarf örugglega að setja upp heilt gagnaver fyrir Skattinn til að halda utan um allar þessar færslur og leiðréttingar. Þetta er algerlega óraunhæft. Vandamálið er það (Forseti hringir.) að þetta hefur ófyrirséðar afleiðingar fyrir starfsfólkið, fyrir samfélagið í gegnum íþróttafélög (Forseti hringir.) og félagasamtök og annað slíkt, fyrir markaðssetningu Íslands. Og (Forseti hringir.) lengi mætti telja.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin.)