kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka svarið. Ég vil eiginlega taka þetta lengra því að ég hélt það væri alveg á hreinu að það mætti ekki rukka skatt tvisvar fyrir sama hlutinn. Þess vegna hefur oft verið talað um, eins og með erfðafjárskattinn, að þetta sé á gráu svæði. Stenst það hreinlega stjórnarskrá ef við ætlum að rukka tvisvar fyrir sama hlut? Við rukkum fyrst á dælunni fyrir sömu eknu kílómetrana. Samkvæmt lögunum er þetta: Þeir greiða sem nota, og allt það, og greiða svo aftur. Ég veit ekki. Mér finnst þetta mjög hæpið. Þetta er alla vega ekki skýr skattheimta, óboðlegt gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum og starfsfólkinu sem er að fara að missa vinnuna. Auðvitað missir fólk vinnuna við svona gríðarlega skattahækkun.
Það sem mig langar líka að spyrja í seinna andsvari er: Áttar hv. þingmaður sig á því að ef hann keyrir 3.000 km, til að mynda í Evrópu, fer með bílinn sinn með Norrænu og keyrir — við vorum búin að ræða þetta í nefndinni og ég hélt að þetta væri á hreinu en nú eru uppi efasemdir um það. Hvað gerist? Erum við að borga kílómetragjald fyrir þessa 3.000 km tvisvar, eða í raun og veru ekki tvisvar heldur erum við að borga fyrir keyrðan kílómetra í Evrópu og kannski vegatolla þar? Er það sanngjarnt? Okkur var sagt að það væri búið að girða fyrir þetta. Mig langar að fá afstöðu þingmannsins: Er það á hreinu? Munum við ekki þurfa að borga fyrir ekna kílómetra í Evrópu eða á mögulega að fara að rukka okkur hér heima? Mér finnst þetta óskýrt. Ég er í nefndinni og ég er rétt að byrja á hlutum sem eru óskýrir og þetta á að taka gildi eftir fimm og hálfan virkan dag ef þetta verður samþykkt sem lög frá Alþingi í dag. Ef þetta verður samþykkt sem lög frá Alþingi á morgun þá erum við að tala um að fyrirtækin hafi fjóra og hálfan virkan dag.