157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:38]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar góðu og mikilvægu spurningar. Það er algerlega ljóst að það á náttúrlega ekki vera tvöföld skattlagning, það er ekkert jafnræði í því, sem er klárlega í gangi hér á margan hátt. Það er til dómafordæmi fyrir því, sem kom meira að segja inn við vinnslu þessa máls, að það þarf að vera algjörlega útskýrt ef löggjafinn ætlar að vera með ósanngjarna skattlagningu; þá þarf að rökstyðja hana, hver munurinn er og af hverju það er og einhver málefnaleg rök fyrir því, sem vantar algjörlega í þessu máli. Breytingartillaga mín við þetta mál er til þess að koma til móts við þetta. Þá eru það einhver málefnaleg sjónarmið til þess að það sé ekki framkvæmanlegt að endurgreiða ýmislegt í þessu, kostnað og aðlögun og annað slíkt, og að vera að borga bensín- og olíugjöld á sama tíma og þú átt að borga kílómetragjald. Breytingartillaga mín kemur aðeins til móts við þetta.

En varðandi það að vera rukkaður á Íslandi fyrir kílómetra sem eru greiddir í Evrópu virðist vera alveg háð því hvaða starfsmaður yfirvalda svarar tölvupóstinum [email protected] hvort þú þurfir að greiða fyrir kílómetrann í Evrópu eða ekki. Ég er með gögn undir höndum, sem ég er búinn að upplýsa nefndina um, þar sem sami aðilinn sendi á þetta netfang og fékk kílómetrana niðurfellda. Næst þegar hann sendi nákvæmlega eins póst á sama netfang þá fékk það ekki niðurfellt. Ég er með nokkur svona dæmi um hvað vandamálið snýst um. Hvernig á að skrá það áður en þú ferð af landi brott er mjög óljóst. Verðurðu að gera það á vottaðri skoðunarstöð? Geturðu gert það sjálfur? Og hvernig á þessi skráning að fara fram svo svarendur á [email protected] taki það gilt sem þú sendir? Þetta er nú þetta frábæra kerfi sem er í smíðum.