kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það er mér ljúft og skylt að segja, og ég viðurkenni það auðmjúkur, að ég hafi mögulega tekið aðeins of djúpt í árinni þegar ég sagði að því væri öllu hafnað. Ég tek undir það með hv. þm. Pawel Bartoszek að hann hefur lagt sig allan fram við að hlusta á athugasemdir og reynt að gera þær betrumbætur sem hægt er að gera. Allt sem hann fór yfir eru betrumbætur sem gera kerfið betra. Ég tek undir það. Mín upplifun er hins vegar sú, sem ég hefði getað orðað á skynsamlegri hátt, að almennt séð er það þannig að algjör meiri hluti breytinganna er þær breytingar sem kerfið óskaði eftir.
Hv. þingmann, framsögumann málsins Pawel Bartoszek, langaði að mæta miklu fleiri sjónarmiðum en það voru ekki til peningar í ríkissjóði fyrir því. Ég upplifi mikinn vilja í nefndinni til að bregðast við mörgum af þessum áhyggjum en ef það kostar peninga og dregur úr tekjum kerfisins virðist það stoppa.
Ein breyting sem hv. þingmaður nefndi áðan, og er ívilnandi, er að fara úr 30 dögum niður í 15 daga. Ósk hagaðila var að geta breytt eftir því af hvaða tegund útleiga var en kerfið treystir sér ekki til að fara nema niður í 15 daga. Almennt er það þannig. Við gengum að öllum breytingum kerfisins. Einstaka breyting gekk eins langt og kerfið hleypti okkur þó að það væri ekki sammála henni.
Mig langar að spyrja hv. þm. Pawel Bartoszek, fyrst ég var svo auðmjúkur að viðurkenna að ég hefði mögulega tekið aðeins of djúpt í árinni, hvort hann vilji ekki líka viðurkenna að hann hafi tekið svolítið djúpt í árinni (Forseti hringir.) þegar hann eignaði hæstv. ríkisstjórn það að hafa lækkað tekjuskatt á fyrirtæki, sem gerðist fyrir ári.