157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veitti viðtal um þetta í Morgunblaðinu og skýrði vonandi mál mitt með þeim hætti eins og hv. þingmaður nefndi.

Mig langaði að nefna eitt af því að hv. þingmaður nefndi lífdísil í ræðu sinni. Það er rétt að okkur hafa borist ábendingar frá aðilum sem hafa framleitt slíka olíu. Svo að ég útskýri þetta aðeins er það þannig að í ákvæði til bráðabirgða VI í frumvarpinu eru talin upp þau ökutæki sem fá 80% afslátt af kílómetragjaldi fyrstu fjögur árin. Þar er talið upp etanól, metan og rafmagn. Lífdísill er ekki talinn upp. Það er ekki hægt vegna þess að flestir bílar sem ganga fyrir lífdísil geta líka gengið fyrir venjulegum dísil. Í ökutækjaskrá er ekki skráð sérstaklega ef ökutæki gengur fyrir lífdísil.

Ekki er með auðveldum hætti hægt að gera breytingar á þessum lögum þannig að við getum undanskilið bifreiðar sem ganga fyrir lífdísil öðruvísi en að allar vélar sem ganga fyrir dísilolíu almennt séu ekki undanskildar. Hugmyndin hér er kannski sú að lífdísill greiði ekki kolefnisgjöld. Það býr til samkeppnisforskot. Það þarf líka að blanda ákveðnu hlutfalli af lífdísil við dísilolíu sem skapar markað fyrir það. Helsta leiðin væri þá að vera með einhvers konar niðurgreiðslu.

Ég velti fyrir mér hvort þingmaðurinn sjái einhverja aðra leið en slíka. Ég tel persónulega að stjórnvöld ættu að fylgjast vel með þessum markaði og grípa til einhverra aðgerða ef við teljum að nauðsynlegt sé að framleiða lífdísil hér á landi, sem ég held að sé eftirsóknarvert. Er þingmaðurinn ekki sammála því að leiðin sé að fylgjast með í kjölfarið og grípa til einhverra aðgerða? Eða sér þingmaðurinn einhverja leið innan þessa frumvarps til að bregðast við þessum vanda?