157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:48]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að taka þetta mál með lífdísil upp. Ég tek undir það með þingmanninum að þetta mál kemur svolítið seint til nefndarinnar. Ég sýni því fullan skilning að ekki sé tilbúin lausn til að bregðast við málinu. Þetta mál sýnir einmitt hversu fjölbreyttar áskoranir eru við þessa stóru kerfisbreytingu. Þær eru gríðarlega margar.

Þó að málið hafi komið svona oft til sögunnar og hafi verið svona lengi á dagskrá hef ég alltaf sagt að fókusinn við vinnslu þess hafi verið á krúttlega heimilisbílinn. Umfangið út fyrir það hefur ekki verið jafn mikið til skoðunar. Þó að þetta hafi verið svona lengi á dagskrá, mikil vinna verið unnin og margir hagaðilar komið að þessu koma svona mál enn upp. Það sýnir bara hvað það borgar sig fyrir okkur að fara varlega. Við vitum ekki enn hvaða fleiri hindranir eiga eftir að koma upp.

Ákveðna lausn gætum við framkvæmt strax. Það er að nefna lífdísil með öðrum innlendum og umhverfisvænum orkugjöfum. Ég átta mig alveg á því að tæknin er öðruvísi þar og erfiðara að fylgja því eftir og svolítið tæknilega flókið. Ég tek undir það með hv. þingmanni að úr þessu er skynsamlegasta leiðin kannski sú að stjórnvöld fylgist strax með þessu og byrji að hugsa hvort hægt sé að bæta þetta mál eftir áramót með einhverjum leiðum og finna lausn á því ef þess er þörf (Forseti hringir.) þegar við sjáum hvernig þetta fer af stað.