157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:50]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að ræða aðeins kílómetraskattinn sem er nú kominn til 3. umræðu og leggja aðeins fleira til. Ríkisstjórnin fæst ekki til að hætta við kílómetraskattinn. Mér sýnist hún samt vilja það. Þegar maður horfir á þingmenn stjórnarliðsins, sérstaklega hv. þingmenn Viðreisnar, þá held ég að þeir ali þann draum í brjósti að þeir gætu látið þennan kílómetraskatt hverfa. Þá langar svo að hætta við þetta mál en einhvern veginn þá fást þeir ekki til þess. Hv. þingmenn engjast í þessum skatti framar öðrum, það er auðsjáanlegt. Ég ætla nú ekki að segja að ég kenni í brjósti um þá en ég finn til með þeim. En þetta er svo auðvelt. Við erum að tala um 3,3 milljarða en afleiðingarnar af þessum skatti eru margfalt dýrari en það. Kannski er það einhver önnur tala en ég var búinn að heyra 3,3 milljarða. Kannski er hún hærri.

Það sem er vandamálið hér í allri þessari skattaholskeflu ríkisstjórnarinnar er að þau geta ekki gert það sem er augljóst. Augljósa leiðin út úr þessu er auðvitað að taka á útgjaldahliðinni. Þau virðast ekki hafa færni til að taka á útgjaldahliðinni. Þau hafa kannski aldrei velt því fyrir sér. Nú er verið að tala um alls konar fundi; samstöðufundi, vinnufundi og verkfundi og allt svona. Ég held að þau ættu kannski að fara á einhvers konar námskeið í því hvernig skal taka á útgjaldahliðinni. Við í Miðflokknum erum búin að benda á margar leiðir í því sambandi. Ég hef stundum kallað þetta lekann í útgjöldunum og hef tekið dæmi um pípulagningarmann. Þú ert að borga heitavatnsreikninga og þeir eru allt of háir og þú skilur ekkert í þessu. Þú ert farinn að draga saman notkunina en alltaf eru reikningarnir svona háir. Þú ferð í bað einu sinni í viku og alltaf færðu þessa háu hitaveitureikninga. Þú kallar á pípara og hann skoðar lagnirnar hjá þér og hann segir: Heyrðu væni minn, það er bara leki í lögninni hjá þér, það bara fossar út og ekki bara á einum stað heldur á þremur stöðum. Við þurfum að laga þetta og gera við þetta.

Í fyrsta lagi: Ríkisbáknið vex út daglega. Núna síðast í fjárlögunum, í seinustu umræðu, óx það enn þá meira því það á að bæta við 15 nýjum starfsmönnum hjá Skattinum. Þau hafa ekki færni til að taka á útgjaldahliðinni. Annar leki er hælisleitendamálin. Þar eru stjórnlaus útgjöld án þess að nokkur geti rönd við reist til að stöðva það. Þriðji lekinn sem pípulagningarmaðurinn varð var við eru loftslagsmálin. Það er kannski erfiðasti lekinn vegna þess að það virðist enginn vita í hvað hátt í 30 milljarðar á ári fara. Ég er búinn að leggja fram spurningar fyrir hæstv. ráðherra og svörin eru mjög rýr. Það virðist enginn vita hvert þessir fjármunir fara, það virðist enginn vita hver tekur við þeim og það virðist enginn vita hvort það sé einhver árangur af því. Ég spyr um árangur, engin svör. Það veit enginn hvaða árangur er af þessu. Og við höldum áfram. Ég er búinn að vera hér í haust að fylgjast með nokkrum málum sem hafa komið hingað inn, oft frá Evrópusambandinu, og það er endalaust flækjustig sem stækkar ríkisbáknið sem enginn skilur oft og tíðum; kolefnisskattar, alls konar losunarheimildir, kaup og sölur á þeim. Kerfið er svo óskiljanlegt að hæstv. ráðherrar hafa engin svör þegar ég spyr að því: Hver er árangurinn af þessum hátt í 30 milljörðum? Má ég sjá árangurinn? Við erum að eyða skattfé borgaranna og þá er eðlilegt að spyrja: Hver er árangurinn? Engin svör, frú forseti. Hver myndi bjóða sér það að moka út fjármunum og hafa ekki hugmynd um hvort það beri nokkurn árangur, ekki minnsta árangur?

Eina leið hæstv. ríkisstjórnar er að auka skatta og kílómetragjaldið er ein af þeim. Þetta er jólapakkinn í ár. Það eru margir jólapakkar, þetta er einn af þeim, og ég fullyrði, frú forseti, að þetta er óvinsælasti jólapakki ríkisstjórnarinnar fyrir þessi jól, langóvinsælasti jólapakkinn sem skattgreiðendur opna núna þessi jólin. Kílómetragjald — stundum velti ég fyrir mér hverjum datt þetta í hug. Það væri gaman að sjá þá persónu sem uppgötvaði þetta: Heyrðu, við skulum leggja á kílómetragjald. Við skulum hætta að rukka fólk við dæluna, þar eru þrjú, fjögur olíufélög sem borga þessar fjárhæðir. Nei, við skulum rukka bara alla sem eru að keyra bíla. Rukkum þá, þeir eru bara 200.000, látum þá skrá kílómetrastöðu mánaðarlega. Þetta er frábær hugmynd. Heyrðu, og ef þau gera það ekki, gamla fólkið sem kann ekki að skrá kílómetrastöðu, kann kannski ekki að fara í tölvunám til að gera það, þá áætlum við bara á það. Gerum það bara svolítið stressað. Endilega stressum gamla fólkið. Það fær reikning í febrúar fyrir janúar: Heyrðu, þú ert búinn að keyra svo og svo mikið og nú skuldar þú ríkinu tugi þúsunda. Gamla fólkið fer auðvitað á taugum. Hvað gerir gamla fólkið í þeim tilvikum sem ekki kann á tölvur? Það rýkur náttúrlega niður í Skattinn eða reynir að hringja, sem er náttúrlega ómögulegt vegna þess að það lendir bara í biðröð. Það kannast allir við þessar biðraðir í símkerfum hins opinbera. Þú kemst næstum aldrei að og eyðir heilu hádegi í að bíða eftir því að komast að. Þannig að gamla fólkið rýkur niður eftir og segir: Ég ók bara mjög lítið í janúar en ég fæ rosa reikning. Hver getur ekki gert sér í hugarlund að svona verði staðan? Hundruð gjaldenda sem þurfa að fara að laga og leiðrétta þessar áætlanir, álagningar og fá leiðréttingu. Sumir greiða kannski og vonast til að þetta hverfi eða leiðréttist seinna. Hvað gerist þá? Þá fá þeir endurgreiðslu. Endalaus bókhaldsvinna hins opinbera og báknið stækkar. Hvað verða margir að vinna við þetta? Þetta stækkar báknið og eykur fyrirhöfn og vinnu þessara 200.000 bílaeigenda.

Þetta er ótrúleg uppfinning, frú forseti. Þegar við vorum að borga þetta við dæluna tókum við bensín og borguðum við dælu. Nú segja þeir: Lækkum bensínið á móti. Já, það verður nú gaman að kaupa bensín, það kostar kannski 100 kr. minna. En hver trúir því að bensínið haldist í þeirri upphæð? Hversu oft höfum við ekki séð þetta leikrit? Mér finnst ég hafa séð þetta áður. Auðvitað hækkar bensínið mjög fljótlega. Þau koma með hækkað kolefnisgjald og losunargjald og hvað þetta heitir allt saman. Bensínverðið mun fara upp á við mjög fljótlega. Auðvitað munu þeir sem selja bensínið forðast að lækka það af öllum kröftum. Hverjir verða fyrir barðinu á þessu? Það eru neytendurnir. Ég ætla ekki að segja venjulegt fólk, ég vil bara forðast það. Ríkisstjórnin ætlar ekki að skattleggja venjulegt fólk. Ég ætla bara ekki að nefna venjulegt fólk. Það er bara eins og að nefna snöru í hengds manns húsi þannig að ég ætla ekki að nefna það, bara alls ekki. Þessir bifreiðaeigendur sem eiga skilið að borga meiri skatta þurfa líka að upplifa það strax á næsta ári að bensínverð mun fara upp á við, frú forseti.

Nei, við viljum ekki fleiri jólapakka frá ríkisstjórninni. Jólaboðin eru fram undan og helsta umræðuefnið þessi jólin verða skattar ríkisstjórnarinnar, að sjálfsögðu, og vonbrigði almennings — ég ætla ekki að segja venjulegs fólks — með Viðreisn sem hélt að hann væri hægri flokkur. Þau segjast vera hægri flokkur. Heyrðu, við erum hægri flokkur. Þau eru gengin í sama svefnpoka og Samfylkingin; þau eru ofan í svefnpoka Samfylkingarinnar og skattleggja hægri vinstri, en ekki á venjulegt fólk. Er Viðreisn borgaralegur flokkur? Nei, hann er skattlagningarflokkur, vinstri flokkur, og ekkert annað. Umræðan í jólaboðum þessi jólin verða skattarnir og fyrst og fremst, frú forseti, verður það kílómetraskatturinn sem gefur 3,3 milljarða sem einfalt ætti að vera að spara á öðrum stöðum.

Ég ætla ekki að tala um fjöldann allan af vandamálum sem fylgja þessum nýja skatti, þó ekki væri nema bara — hvað ætlar hæstv. ríkisstjórn að gera fyrir bílaleigurnar sem eiga kannski 100 eða 1.000 bílaleigubíla 31. desember næstkomandi sem eru fullir af bensíni? Þeir eru leigðir út yfir áramótin og eru búnir að borga öll þessi gjöld, þessi háu gjöld, af bensíninu sem á bílunum er og síðan aka þeir inn í janúar og borga líka kílómetraskattinn. Mönnum finnst þetta kannski léttvægt á einum bíl, einni bifreið, en þegar menn tala um 100 eða 1.000 bifreiðar bílaleigna þá er þetta eins og ég sá hér í einum pósti hjá einni bílaleigu sem greiðir 29 milljónir umfram, aukalega, vegna þess að bílaleigur borga tvöfalt gjald. Þær borga sem sagt bensínið fyrir áramót og þær borga kílómetragjald eftir áramót. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að taka á þessu? Hvernig ætla starfsmenn Skattsins að taka á þessu þegar fólk kemur þangað? Þeir ná ekki einu sinni að taka leiðréttingar frá þessum bílaleigum eins og frægt er orðið í nýlegum bréfum sem hér hafa verið lesin upp á hv. Alþingi. Lagaskilin í þessu regluverki yfir áramótin eru mjög kostnaðarsöm. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að taka á því? Er hún með einhverjar upplýsingar fyrir almenning sem lendir í þessu? Er hún með breytingartillögur hvað þetta varðar í þessum lagaskilum? Ég væri forvitinn að sjá það.