157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:05]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, frænda mínum, fyrir sköruglega ræðu. Allt satt og rétt. Eiginlega er ótrúlegt að fylgjast með þessu. Nú erum við á lokametrunum í umræðunni um kílómetragjald og enn þá er smámöguleiki fyrir hæstv. ríkisstjórn að draga þetta dellumál til baka. Þetta er vinstri stjórn og um það verður ekki deilt. Þetta er vinstri stjórn sem þarf að fóðra útgjaldaeyðsluna og þá er miklu einfaldara fyrir hæstv. ríkisstjórn að hækka verðið á dælunni, halda kerfinu eins og það er og hækka verðið á dælunni.

Ég hjó eftir því í ræðu hv. þingmanns í umræðu um kílómetragjald á dögunum að hv. þingmaður talaði um sektarákvæði sem getur numið allt að 100 millj. kr. ef menn svíkjast undan því að borga kílómetragjald, eins og ég skildi hv. þingmann. Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann er nú gamall sýslumaður og þekkir vel til: Er ekki hægt að segja þegar rætt er um kílómetragjald að það sé ansi vel í lagt að gefa ríkinu sektarheimild upp á allt að 100 millj. kr. hvað varðar brot á lögum um kílómetragjald?