kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka frænda mínum, hv. þm. Jens Garðari Helgasyni, kærlega fyrir þessar spurningar sem voru held ég tvær. Hv. þingmaður lagði til að ríkisstjórnin myndi frekar hækka verð á bensíni á dælu. Nei, segi ég. Ég segi nei við þessari spurningu. Ég legg til að hún lækki útgjöld. Ég hef bent á augljós útgjöld ríkissjóðs í óþarfa. Stóran hluta af útgjöldum, t.d. til hælisleitendamála og loftslagsmála, ég ætla ekki að segja allan hlutann en stóran hluta af útgjöldum til þessara málaflokka tveggja er unnt að spara. Það gæti hugsanlega tekið fremur skamman tíma ef menn hefðu virkilega vilja til þess. Þegar menn eru farnir að eyða tuttugu og eitthvað milljörðum á ári í loftslagsmál og enginn getur svarað um hvert megnið af því rennur eða hvaða árangur hefst af því þá hlýtur augljóslega, frú forseti, að vera hægt að spara þar. Í samhengi við hina spurningu hv. þingmanns um sektirnar, 100 milljónir, þá get ég ekki ímyndað mér að bíleigandi sem misfer eitthvað með kílómetraskattinn fái 100 millj. kr. sekt. Mér finnst þetta bara lýsa svo miklu hugmyndaflugi og frjórri hugsun hæstv. ríkisstjórnar að ég stakk upp á því að þetta yrðu 1.000 milljónir. Til hvers að fara í 100 milljónir, af hverju ekki bara 1.000 milljónir? Það var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá þessa upphæð.