kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég ætla bara að eyða örskammri stund í samgönguáætlun. Hún er ekki komin til umræðu en hún hefur birst okkur og hún hefur yfirskriftina frá ríkisstjórninni — ríkisstjórnin er öll í því að vera með einhvers konar auglýsingamennsku. Þau birta einhver vídeó af sér á samfélagsmiðlum og brosa og skála og syngja jafnvel og koma svo með einhverja frasa, eins og með þessari samgönguáætlun. Þá komu þau með þennan skemmtilega frasa: Ræsum vélarnar. Hæstv. ráðherrarnir: Ræsum vélarnar. Þetta eru öfugmæli, ræsum vélarnar. Í örstuttu máli fjallar þessi samgönguáætlun aðallega um það hvað næsta ríkisstjórn á að gera í samgöngumálum. Það eru engar vélar að fara af stað í boði þessarar ríkisstjórnar umfram það sem verið hefur. Eins og með jarðgöngin, það eru engin jarðgöng að koma hérna á árinu 2026 og ekki einu sinni á árinu 2027. Það er ekki að fara að gerast, frú forseti. Það er ekki verið að ræsa neinar vélar. Þau eru að segja við næstu ríkisstjórn: Heyrðu, viljið þið ræsa einhverjar vélar til að laga vegina okkar? Við ætlum ekki að gera það. Ég gef nú lítið fyrir þetta. En ég hef auðvitað áhyggjur af landsbyggðinni, eins og hv. þingmaður talaði um. Ég hef áhyggjur af því, frú forseti, að þessi kílómetraskattur valdi því að ferðamenn og fólk almennt keyri styttri vegalengdir og það muni bitna á þeim byggðum sem eru lengra í burtu frá höfuðborginni. Ég hef áhyggjur af því að þetta muni stytta ferðalög.