kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir góða ræðu á mannamáli. Það er mikilvægt fyrir okkur í þinginu að ræða mál sem er kannski stundum erfitt að botna í því að hér kemur hver ræðumaðurinn á fætur öðrum og einn segir að við séum að stefna í norður og hinn segir að við séum að stefna í suður. Svo sitja áhorfendur heima og klóra sér í kollinum því að báðir eru jafn sannfærandi hér í pontu. Við þetta fólk vil ég segja: Gluggið í fjölmiðla og blöðin og athugið hvað þeir sem málin snerta segja, af því að einhvern tímann mun þetta fólk sem á þetta horfir núna vera þeir aðilar sem lenda í skattahakkavél ríkisstjórnarinnar og þá vill það fólk að hlustað sé á það.
En mig langar að spyrja hv. þingmann um ferðaþjónustuna sem er aðeins lengra í burtu en Borgarnes og Vík í Mýrdal. Við erum kannski að tala um bóndann sem hefur minnkað við sig stofninn, ákveðið að byggja upp, setja upp fimm smáhýsi og tvö stærri hús til að leigja út og hefur steypt sér í skuldir vegna þessa, hundruð milljóna skuldir, því að það er ekki gefins að byggja upp ferðaþjónustu, hvað þá aðeins í burtu frá fjölda iðnaðarmanna. Hvaða áhrif gæti þetta kílómetragjald haft á ferðaþjónustu af þessu tagi og er þetta fólk sem er í þessu venjulegt fólk?