157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:16]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir ágætar spurningar. Ég er búinn að ásetja mér það að nefna ekki venjulegt fólk. Ég ætla ekki að voga mér að nefna venjulegt fólk vegna þess að ríkisstjórnin er búin að lofa því, hún lofaði því fyrir kosningar að það yrðu ekki lagðir skattar á venjulegt fólk. Þannig að ég voga mér ekki að nefna þetta venjulegt fólk. Ég hef ekki hugmynd um hvaða fólk þetta er og ríkisstjórnin verður að koma með skilgreiningu á því hérna fyrir okkur áður en ég voga mér að nefna það. Það er verið að skattleggja alla aðra en venjulegt fólk.

Varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu úti á landi hef ég auðvitað stórar áhyggjur af því komandi úr Suðurkjördæmi, sem er mjög víðfeðmt kjördæmi, nær alla leið austur fyrir Höfn í Hornafirði, að íslenskir ferðamenn og erlendir ferðamenn sem skoða landið muni hugsa sig tvisvar um þegar verið er að mæla allar þeirra ferðir. Það er verið að mæla allar þeirra ferðir. Þeir eru komnir í vinnu hjá ríkinu við að skrá niður allar sínar ferðir. Menn munu hugsa sig tvisvar um hvort þeir ætli að fara austur á Gullfoss og Geysi eða jafnvel styttra, kannski bara í Hveragerði núna, það er kannski nóg að fara þangað, áður en þeir fara að aka alla leið út á Seljalandsfoss eða til Vestmannaeyja, hvað þá heldur Jökulsárlón eða alla leið austur á Höfn í Hornafirði. Ég hef stórar áhyggjur af því þegar menn eru komnir í fulla vinnu hjá ríkinu við að skrá niður sínar ferðir, sinn akstur. Auðvitað er búið að byggja upp heljarinnar ferðaþjónustu á þessum stöðum og menn hafa notið þess að ferðamaðurinn hefur heimsótt þessa staði þótt þeir séu langt frá höfuðborginni.