157. löggjafarþing — 52. fundur,  18. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:21]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans spurningar. Ég myndi vilja fá þann pakka að ríkisstjórnin myndi læra og tilkynna okkur að hún ætlaði að fara að lækka útgjöld ríkissjóðs, ætlaði að draga saman ríkisbáknið, ætlaði að draga saman kostnað við hælisleitendur, ætlaði að draga saman þennan geipilega kostnað sem við erum að sóa í loftslagsmál, sem við vitum ekki einu sinni hvert rennur eða hvaða árangur hefur. Ef ríkisstjórnin myndi tilkynna um aðgerðir myndi ég styðja slík frumvörp sem kæmu fram. Það yrði besti jólapakkinn vegna þess að þá gætum við strax farið að ræða það hvernig við getum komið með alvörugjafir í pökkunum, þ.e. skattalækkanir, betri heilsugæslu, betri löggæslu, betra menntakerfi. Þá myndi skapast svigrúm til að bæta kerfin okkar, sleppa skattahækkunum og jafnvel lækka skatta eftir að við værum búin að borga skuldir ríkissjóðs og gætum hætt að borga 100 milljarða í vexti. Þetta leiðir hvert af öðru. En í jólaboðunum í ár verður rætt um þessa jólapakka. Það verður rætt um kílómetraskattinn, sem er auðvitað bara kílómetraskattur en ekki gjald. Það mun verða rætt og fólk mun tala um það: Ertu búinn að fá áætlun? Já. Ertu búinn að fá álagningu, er búið að áætla á þig? Ertu búinn að skila kílómetrastöðu? Nei. Hvernig gerir maður það? Ertu búinn að fá leiðréttingu, er búið að leiðrétta hjá þér? Nei, hvar bið ég um það? Þú verður að skila inn kílómetrastöðu. En endurálagningin, er hún komin til þín? Nei, ég á eftir að skila áætluninni. Ég á eftir að skila kílómetrastöðunni til að breyta áætluninni. Ertu kannski búinn að fá sektarálagningu? Ertu búinn að borga sektina? Ertu búinn að fá endurgreiðslu? Þetta verða umræðurnar á næstunni.