kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég hef farið ágætlega yfir þá galla sem mér finnst vera á máli um nýja kílómetraskatta. Ég hef þó fengið fyrirspurnir um hvaða áhrif þetta hafi nákvæmlega, þ.e. af hverju er ekki hægt að samþykkja þetta 1. janúar 2026, eftir fimm og hálfan virkan dag? Skatturinn hefur nú verið í tvö ár að innheimta kílómetragjöld af rafmagnsbifreiðum en enn eru miklir annmarkar á kerfinu og flækjustig er mikið. Hins vegar ætlar Skatturinn að reyna að vera tilbúinn með reikninga sem koma 1. febrúar. Er þá sanngjarnt að fyrirtækjum úti í bæ sé gert að vera tilbúin með sín kerfi á fimm og hálfum virkum degi þegar fyrir liggur að þar inni eru jólahátíðarnar þegar margir eru í fríi?
Nú hef ég stuttan tíma og langar mig því að fara yfir nokkur atriði fyrir fólk til að átta sig á. Ég ætla að einbeita mér að fyrirtækjunum en ég er búin að fara aðeins yfir einstaklingana. Til að mynda hefur þetta eðlilega mikil áhrif á bílaleigurnar. Þær eru með mörg þúsund bíla. Hvað gerist eftir að bílaleigurnar og viðskiptavinir þeirra hafa fyllt tankana fyrir áramót? Kannski leigir einhver bíl 27. desember og skilar honum 4. janúar. Á þá að vera tvöföld skattheimta? Á bæði að borga fyrir bensínið með öllum gjöldum fyrir áramót og svo nýja kílómetraskatta eftir áramót? Ein bílaleiga hér í bæ er búin að reikna út hvað þetta muni hugsanlega kosta: 30 milljónir.
Svo getum við til að mynda talað um kílómetrastöðuna. Þessir bílar eru í útleigu. Það er ekki gefinn mikill tími til að hagræða því hvernig best sé að lesa af bílunum. Hvernig á bílaleiga með mörg þúsund bíla, til að mynda er ein með 8.000 bíla, að gera þetta? Hún fékk ekki skýr svör. Ráðuneytið vissi það ekki og Skatturinn taldi vænlegast að hringja bara í alla þessa aðila en var samt ekki alveg viss ef ég skil málið rétt. Ef bílaleigan finnur einhverja til að hringja þessi 8.000 símtöl fyrir sig 1. janúar, mun Skatturinn taka það gilt? Það er svolítið mikilvægt að það liggi fyrir vegna þess að í þessu frumvarpi eru sektarheimildir, ef ég man rétt, fyrir 100 milljónir ef réttum upplýsingum um kílómetraskatt er ekki skilað. Það er ógerningur fyrir flest fyrirtækin, mörg þeirra sem eru með flestu bílana, að fylgja þessum lögum. Við getum því ekki leyft okkur að setja lög á Alþingi sem við vitum að er ekki hægt að fylgja. Þó að Skatturinn væri mögulega tilbúinn akkúrat núna, þótt hann hafi ekki verið það síðustu tvö ár, eru olíufélögin tilbúin? Nú liggur fyrir að nótur frá olíufélögunum verða að sýna sundurliðun á gjöldum. Hvernig eiga olíufélögin að vera tilbúin 1. janúar að framfylgja þessum lögum? Vissulega er flækjustigið mikið fyrir einstaklinga en fyrir lögaðila er það ógerningur, það liggur fyrir. Bara það að innheimta þessa nýju skatta fyrir ríkið mun kosta fyrirtækin tugmilljónir ef ekki hundruð milljóna í færslugjöld. Nú eru bílaleigurnar auðvitað búnar að leigja út bíla og geta ekki bætt við þessum sköttum á bifreiðarnar. Ég er með heilan lista sem ég hef fengið sendan víða að þar sem bent er á gallana í þessu kerfi. Ein bílaleiga sendi mér til að mynda upplýsingar um bifreið þar sem búið var að rukka fyrir einn bíl, rafmagnsbifreið, 20 milljónir of mikið sem tók yfir mánuð að fá endurgreitt. — Ég er því miður runnin út á tíma.